Efnisneysla (e. Domestic Material Consumption; DMC) á Íslandi var 6.468 kílótonn árið 2025 en var 6.361 kílótonn árið áður. Þessi gildi samsvara 16,6 tonnum á hvern íbúa.
Efnisneysla er einn af þeim lykil mælikvörðum sem Sameinuðu þjóðirnar nota til að meta umhverfisálag og nýtingu náttúruauðlinda hjá ríkjum og er hluti af sjálfbærnivísi SDG-12.2. Steinefni til byggingaiðnaðar og vegagerðar er stærsti hluti efnisneyslunnar. Samkvæmt skilgreiningu er efnisneysla innlend efnistaka plús innflutningur mínus útflutningur. Hér skal þó hafa í huga að form efnis getur verið annað í innlendri efnistöku (t.d. fiskur úr sjó) en í útflutningi og innflutningi.