FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. ÁGÚST 2014

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,1 milljarð króna og inn fyrir 52 milljarða króna fob (55,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæpa 0,9 milljarða króna. Í júlí 2013 voru vöruskiptin hagstæð um 5,3 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Fyrstu sjö mánuði ársins 2014 voru fluttar út vörur fyrir 316,5 milljarða króna en inn fyrir 332,7 milljarða króna fob (356,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 16,2 milljarða króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 17,2 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því  33,4 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Hlutur eldsneytis keypt erlendis af innlendum flutningsförum nemur um 13 milljörðum vegna nýs staðals fyrir vöruskipti.

Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2014 var verðmæti vöruútflutnings 35,7 milljörðum eða 10,1% lægra á gengi hvors árs1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna áls. Sjávarafurðir voru 42,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,6% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2014 var verðmæti vöruinnflutnings 2,3 milljörðum eða 0,7% lægra á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru, eldsneytis, fjárfestingavöru og flugvéla. Á móti kom aukinn innflutningur á fólksbílum og skipum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í júlí 2013 og 2014
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-jan.
Júlí Janúar-júlí
  2013 2014 2013 2014
Útflutningur alls fob 55.520,8 51.133,1 352.201,7 316.506,2 -10,1
Sjávarafurðir 22.526,2 20.511,8 152.494,1 133.257,2 -12,6
Landbúnaðarvörur 750,5 633,7 7.049,2 5.848,0 -17,0
Iðnaðarvörur 29.329,5 28.913,6 183.906,1 166.901,8 -9,2
Aðrar vörur 2.914,6 1.074,0 8.752,4 10.499,3 20,0
Innflutningur alls fob 50.177,2 52.021,4 335.013,7 332.704,6 -0,7
Matvörur og drykkjarvörur 4.677,9 5.331,7 30.115,0 31.258,6 3,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.976,7 15.720,1 98.442,4 94.616,4 -3,9
Eldsneyti og smurolíur 8.868,2 10.603,8 60.358,5 58.217,9 -3,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.790,6 10.128,8 76.003,5 72.623,9 -4,4
Flutningatæki 3.460,4 3.789,0 29.097,0 35.213,2 21,0
Neysluvörur ót.a. 6.193,7 6.398,4 40.347,5 40.269,6 -0,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 209,7 49,6 650,0 505,0 -22,3
Vöruskiptajöfnuður 5.343,5 -888,3 17.188,0 -16.198,4 .

¹ Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.