FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. APRÍL 2013

Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 49,6 milljarða króna og inn fyrir tæpa 42 milljarða króna fob (45,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,6 milljarða króna. Í febrúar 2012 voru vöruskiptin hagstæð um 12,6 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Fyrstu tvo mánuðina 2013 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 105,4 milljarða króna en inn fyrir 86,1 milljarð króna fob (93,7 milljarða króna cif). 19,2 milljarða króna afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 13,1 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruútflutnings 3,9 milljörðum eða 3,8% meira á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,5% meira en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,9% meira en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruinnflutnings 2,2 milljörðum eða 2,5% minna á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður, aðallega vegna minni innflutnings skipa og flugvéla. Á móti kom aukinn innflutningur fjárfestingavara og hrá- og rekstrarvara.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2012 og 2013
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-janúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2012 2013 2012 2013
Útflutningur alls fob 54.186,7 49.621,1 101.474,7 105.362,2 3,8
Sjávarafurðir 23.419,5 24.164,4 41.189,1 44.841,0 8,9
Landbúnaðarvörur 939,4 1.024,4 2.177,5 2.464,2 13,2
Iðnaðarvörur 28.293,3 23.627,1 55.813,8 56.114,0 0,5
Aðrar vörur 1.534,5 805,1 2.294,2 1.943,0 -15,3
Innflutningur alls fob 41.564,8 41.980,4 88.355,8 86.145,5 -2,5
Matvörur og drykkjarvörur 3.659,4 3.819,7 7.137,1 7.658,8 7,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.s. 13.653,9 14.146,0 25.497,5 27.931,5 9,5
Eldsneyti og smurolíur 5.542,4 5.496,2 11.315,2 12.542,2 10,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.323,4 10.571,2 18.263,2 22.376,9 22,5
Flutningatæki 4.063,2 2.358,7 15.946,4 4.472,0 -72,0
Neysluvörur ót.a.s. 5.294,1 5.500,8 10.098,8 10.834,4 7,3
Vörur ót.a.s. (t.d. endursendar vörur) 28,4 87,8 97,7 329,8 .
Vöruskiptajöfnuður 12.621,9 7.640,7 13.118,9 19.216,7 .

 

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.