FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2015


Vöruskiptajöfnuður
Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,3 milljarða króna og inn fyrir 57,2 milljarða króna fob (60,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,9 milljarða króna. Í maí 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 5,0 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 276,2 milljarða króna en inn fyrir tæpa 274,0 milljarða króna fob (292,0 milljarða króna cif). Afgangur var því af vöruskiptum við útlönd sem nam 2,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 2,2 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því mjög svipaður og á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 48,7 milljörðum eða 21,4% hærra á gengi hvors árs1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 31,0% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 40,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 17,4% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 48,7 milljörðum eða 21,6% hærra á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-maí
  Maí Jan-maí
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 52.965,7 54.341,1 227.541,0 276.243,3 21,4
Sjávarafurðir 20.595,9 23.658,5 95.809,4 112.443,3 17,4
Landbúnaðarvörur 591,2 768,1 4.638,6 6.064,3 30,7
Iðnaðarvörur 28.300,5 28.482,3 116.478,5 152.553,0 31,0
Aðrar vörur 3.478,1 1.432,1 10.614,6 5.182,7 -51,2
           
Innflutningur alls fob 47.947,9 57.247,5 225.305,0 273.990,0 21,6
Matvörur og drykkjarvörur 4.320,3 7.978,1 21.158,5 28.336,7 33,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.690,1 15.082,8 65.501,5 79.454,5 21,3
Eldsneyti og smurolíur 5.559,8 7.163,8 33.479,5 31.523,7 -5,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.854,9 11.130,4 51.576,5 51.592,3 0,0
Flutningatæki 6.388,2 9.637,4 24.873,6 50.482,0 .
Neysluvörur ót.a. 6.008,1 6.230,6 28.276,9 32.001,0 13,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 126,5 24,3 438,5 599,8 36,8
           
Vöruskiptajöfnuður 5.017,8 -2.906,4 2.236,0 2.253,3 .

Samfara þessari útgáfu náðist ekki að uppfæra tollskrárnúmeratöflur á vefnum en þær verða uppfærðar eins fljótt og kostur er.

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.