FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2015

Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,9 milljarða króna og inn fyrir 54,5 milljarða króna fob (58,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,6 milljarða króna. Í júlí 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,2 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 385,2 milljarða króna en inn fyrir rúma 391,5 milljarða króna fob (417,7 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 6,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 7,6 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 58,7 milljörðum eða 18,0% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,8% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 41,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,4 milljörðum eða 17,2% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-júlí
  Júlí Jan.-júlí
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 55.386,5 51.907,0 326.482,0 385.176,2 18,0
Sjávarafurðir 20.860,1 20.494,3 134.443,0 160.369,5 19,3
Landbúnaðarvörur 636,6 842,5 5.772,5 7.678,3 33,0
Iðnaðarvörur 29.142,3 29.257,8 167.188,2 208.635,1 24,8
Aðrar vörur 4.747,6 1.312,5 19.078,3 8.493,3 -55,5
           
Innflutningur alls fob 53.228,4 54.465,7 334.123,9 391.536,0 17,2
Matvörur og drykkjarvörur 5.335,1 6.910,8 31.424,8 39.354,4 25,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.615,2 13.618,2 94.636,2 115.187,4 21,7
Eldsneyti og smurolíur 10.603,9 9.292,5 58.218,1 50.258,1 -13,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.105,5 12.000,5 72.619,9 76.894,0 5,9
Flutningatæki 5.118,7 6.000,1 36.460,4 64.109,3 75,8
Neysluvörur ót.a. 6.400,4 6.476,7 40.261,0 44.879,9 11,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 49,6 167,0 503,5 852,8 69,4
           
Vöruskiptajöfnuður 2.158,2 -2.558,7 -7.641,9 -6.359,8 .

  

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.