Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir rúma 56,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 52,2 milljarða króna fob (55,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 4,7 milljarða króna. Í apríl 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 6,8 milljarða króna á gengi hvors árs¹.
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 221,9 milljarða króna en inn fyrir rúma 216,6 milljarða króna fob (231 milljarð króna cif). Afgangur var því af vöruskiptum við útlönd sem nam 5,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 2,8 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 47,3 milljörðum eða 27,1% hærra á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 40,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna áls. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 18% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.
Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 39,3 milljörðum eða 22,2% hærra á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2014 og 2015 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-apríl | ||||
Apríl | Jan-apríl | ||||
2014 | 2015 | 2014 | 2015 | ||
Útflutningur alls fob | 37.652,6 | 56.833,8 | 174.575,3 | 221.890,4 | 27,1 |
Sjávarafurðir | 18.888,6 | 23.380,4 | 75.213,4 | 88.773,0 | 18,0 |
Landbúnaðarvörur | 966,3 | 971,9 | 4.047,3 | 5.296,1 | 30,9 |
Iðnaðarvörur | 16.995,1 | 31.728,7 | 88.178,0 | 124.070,6 | 40,7 |
Aðrar vörur | 802,5 | 752,8 | 7.136,5 | 3.750,6 | -47,4 |
Innflutningur alls fob | 44.443,2 | 52.170,8 | 177.357,1 | 216.647,0 | 22,2 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.585,2 | 4.678,4 | 16.838,3 | 20.358,7 | 20,9 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.702,9 | 16.600,9 | 50.811,4 | 64.404,1 | 26,8 |
Eldsneyti og smurolíur | 5.729,4 | 6.330,3 | 27.919,7 | 24.359,9 | -12,8 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.673,8 | 10.170,1 | 40.721,6 | 40.375,3 | -0,9 |
Flutningatæki | 3.687,9 | 7.079,6 | 18.485,4 | 40.804,2 | . |
Neysluvörur ót.a. | 5.999,7 | 6.903,7 | 22.268,7 | 25.769,4 | 15,7 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 64,3 | 407,8 | 311,9 | 575,5 | 84,5 |
Vöruskiptajöfnuður | -6.790,6 | 4.663,0 | -2.781,8 | 5.243,3 | . |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.