Vegna villu í grunngögnum í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd 2011. Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða í heild. Endanlegar niðurstöður um vöruskiptin fyrir árið 2011 verða gefnar út í apríl 2012.
Vöruskiptajöfnuður
Samkvæmt leiðréttum bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2011 fluttar út vörur fyrir 618,8 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarð króna fob (560,6 milljarða króna cif). Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 96,9 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 119,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23 milljörðum króna óhagstæðari en árið áður.
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 52,8 milljarða króna og inn fyrir 53,4 milljarða króna fob (56,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 0,6 milljarða króna. Í desember 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 14,6 milljarða króna á sama gengi¹.
Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2011.
Útflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2011 var heildarverðmæti vöruútflutnings 10,6% meiri en árið áður á föstu gengi¹. Iðnaðarvörur voru 54,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,2% meira á árinu 2011 en árið áður. Ál og afurðir áls vó þyngst í útflutningi iðnaðarvara auk þess að aukast mest, í krónum talið, frá árinu 2010 (13,9 milljarðar). Sjávarafurðir voru 40,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,4% meira en árið 2010. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök en útflutningur sjávarafurða, í krónum talið, jókst mest á frystum heilum fiski (16,7 milljarðar).
Innflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2011 18,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings voru hrá- og rekstrarvara með 31,7% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,9% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í hrá- og rekstrarvöru 14,0% (20,3 milljarðar) og eldsneyti og smurolíu 32,4% (18,7 milljarðar).
Vöruskiptin við útlönd desember 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2011 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-desember | ||||
Desember | Janúar-desember | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 52.880 | 52.807 | 559.574 | 618.843 | 10,6 |
Innflutningur alls fob | 38.269 | 53.447 | 439.675 | 521.938 | 18,7 |
Vöruskiptajöfnuður | 14.611 | -640 | 119.899 | 96.905 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-desember 2010 og 2011 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember | ||||
Desember | Janúar-desember | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 50.404,9 | 52.807,3 | 561.032,2 | 618.843,3 | 10,6 |
Sjávarafurðir | 16.688,8 | 22.340,8 | 220.487,8 | 251.600,7 | 14,4 |
Landbúnaðarvörur | 1.827,3 | 1.213,6 | 8.969,6 | 9.334,3 | 4,3 |
Iðnaðarvörur | 28.011,3 | 27.229,6 | 311.012,3 | 335.566,8 | 8,2 |
Aðrar vörur | 3.877,5 | 2.023,2 | 20.562,5 | 22.341,5 | 8,9 |
Innflutningur alls fob | 36.477,7 | 53.447,3 | 440.820,9 | 521.938,0 | 18,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.716,5 | 3.807,5 | 42.754,3 | 47.951,8 | 12,5 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 9.819,1 | 9.273,5 | 145.311,0 | 165.229,0 | 14,0 |
Eldsneyti og smurolíur | 4.978,6 | 5.395,6 | 57.723,7 | 76.236,0 | 32,4 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 8.629,4 | 10.789,4 | 99.823,3 | 114.331,6 | 14,8 |
Flutningatæki | 3.878,1 | 12.505,4 | 29.981,4 | 44.020,3 | 47,2 |
Neysluvörur ót.a. | 5.435,7 | 6.747,2 | 64.732,3 | 68.557,9 | 6,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 20,3 | 4.928,7 | 495,0 | 5.611,3 | · |
Vöruskiptajöfnuður | 13.927,2 | -640,1 | 120.211,2 | 96.905,4 | · |
¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 0,3% lægra mánuðina janúar–desember 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í desember 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,9% hærra en í desember árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir árið 2011 verða gefnar út í apríl 2012.
Talnaefni