FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 11. NÓVEMBER 2020

Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 44,7 milljarðar króna í ágúst 2020 en vöruinnflutningur 55,5 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 10,8 milljarða króna. Í sama mánuði var þjónustujöfnuður áætlaður jákvæður um 7,9 milljarða króna, en útflutt þjónusta var áætluð 31,7 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 23,7 milljarðar.

Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta í ágúst 2020 var því áætlað 76,3 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 79,2 milljarðar. Vöru- og þjónustujöfnuður var fyrir vikið áætlaður neikvæður um 2,9 milljarða króna í ágúst 2020.

Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 638,4 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins samanborið við 895,2 milljarða á fyrstu átta mánuðum ársins 2019. Verðmæti innflutnings var áætlað 640,7 milljarðar borið saman við 802,6 milljarða fyrir sama tímabil 2019. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrstu átta mánuði ársins 2020 var því áætlaður neikvæður um 2,3 milljarða samanborið við 92,6 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir sama tímabil árið á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til ágúst 2019 og 2020
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs, %
Ágúst Janúar-ágúst
20192020 2019 2020
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls125.113,476.323,2895.197,3638.445,2-28,7
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði46.835,344.672,8438.624,2391.493,3-10,7
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta78.278,131.650,5456.573,1246.951,9-45,9
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls96.247,679.238,2802.554,0640.748,5-20,2
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði57.894,455.494,4509.771,9441.122,8-13,5
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta38.353,323.743,8292.782,1199.625,7-31,8
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði28.865,8-2.915,092.643,4-2.303,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.