FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 15. NÓVEMBER 2021

Verðmæti þjónustuútflutnings í ágúst var áætlað 57,4 milljarðar króna og jókst um 78% frá því í ágúst 2020 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum voru áætlaðar um 32,1 milljarður í ágúst og jukust hratt, eins og undanfarna mánuði, samanborið við sama tíma 2020. Tekjur af samgöngum og flutningum voru áætlaðar 13,8 milljarðar króna í ágúst og jukust um 129% miðað við ágúst 2020. Verðmæti annara þjónustuliða í útflutningi var áætlað 11,4 milljarðar í ágúst og dróst saman um 17% frá því í ágúst á síðasta ári.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í ágúst var áætlað 34,9 milljarðar króna og jókst um 40% frá því í ágúst 2020 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis voru áætluð 10,3 milljarðar í ágúst og jukust um 74% samanborið við ágúst á síðasta ári. Útgjöld vegna samgangna og flutninga voru áætluð 6,7 milljarðar í ágúst og jukust um 38% miðað við ágúst 2020. Verðmæti annara þjónustuliða í innflutningi var áætlað 17,9 milljarðar í ágúst og jókst um 27% frá því í ágúst fyrir ári.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá september 2020 til ágúst 2021, var áætlað 408,3 milljarðar króna og dróst saman um 16% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Á sama tímabili var verðmæti þjónustuinnflutnings áætlað 319 milljarðar og dróst saman um 10% miðað við sama tímabil árið áður.

Verðmæti útflutnings og innflutnings á þjónustu (milljarðar króna)
  Ágúst 2020 Ágúst 2021 Breyting, % September 2019-ágúst 2020 September 2020-ágúst 2021 Breyting, %
        
Þjónustuútflutningur 32,2 57,4 78 485,8 408,3 -16
Samgöngur og flutningar 6,0 13,8 129 126,3 96,7 -23
Ferðalög 12,5 32,1 158 169,2 105,0 -38
Aðrir þjónustuliðir 13,7 11,4 -17 190,3 206,6 9
           
Þjónustuinnflutningur 24,9 34,9 40 354,6 319,0 -10
Samgöngur og flutningar 4,9 6,7 38 67,5 64,4 -5
Ferðalög 5,9 10,3 74 117,0 62,9 -46
Aðrir þjónustuliðir 14,1 17,9 27 170,2 191,7 13
             
Þjónustujöfnuður 7,3 22,5   131,1 89,3  

Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 56,3 milljarðar króna í ágúst 2021 en vöruinnflutningur 82,1 milljarður. Vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 25,8 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í ágúst 2021 var því áætlað 113,7 milljarðar króna og jókst um 48% miðað við sama mánuð 2020. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 117 milljarðar og jókst um 42% miðað við sama mánuð 2020.

Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 1.118,2 milljarðar króna á síðustu tólf mánuðum og jókst um 2% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil var áætlað 1.161,6 milljarðar og jókst um 9% miðað við tólf mánuði þar á undan. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir síðustu tólf mánuði er því áætlaður neikvæður um 43,5 milljarða króna samanborið við 26,3 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti útflutnings og innflutnings vöru og þjónustu (milljarðar króna)
  Ágúst 2020 Ágúst 2021 Breyting, % September 2019-ágúst 2020 September 2020-ágúst 2021 Breyting, %
Útflutningur á vöru- og þjónustu76,9113,7481.092,41.118,22
Vöruútflutningur44,756,326606,7709,917
Þjónustuútflutningur32,257,478485,8408,3-16
Innflutningur á vöru- og þjónustu82,3117,0421.066,11.161,69
Vöruinnflutningur57,482,143711,5842,718
Þjónustuinnflutningur24,934,940354,6319,0-10
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði-5,4-3,2 26,3-43,5 

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.