FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. JÚNÍ 2021

Verðmæti þjónustuútflutnings í apríl var áætlað 26,2 milljarðar króna og jókst um 39% frá því í apríl 2020 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum voru áætlaðar um 3,7 milljarðar í apríl og aukast nú verulega og hratt samanborið við sama tíma 2020 þegar áhrifa kórónuveirufaraldurins gætti sem mest. Tekjur af samgöngum og flutningum voru áætlaðar 6,7 milljarðar króna í apríl og jukust um 39% miðað við apríl 2020. Verðmæti annara þjónustuliða í útflutningi var áætlað 15,7 milljarðar í apríl og jókst það um 20% frá því í apríl 2020.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í apríl var áætlað 27,0 milljarðar króna og jókst um 44% frá því í apríl 2020 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis voru áætluð 3,8 milljarðar í apríl og jukust um 82% samanborið við apríl á síðasta ári. Útgjöld vegna samgangna og flutninga voru áætluð 5,2 milljarðar í apríl og jukust um 30% miðað við apríl 2020. Verðmæti annara þjónustuliða í innflutningi var áætlað 18,0 milljarðar í apríl og jókst það um 42% frá því í apríl fyrir ári.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá maí 2020 til apríl 2021, var áætlað 327,1 milljarður og dróst saman um 50% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Á sama tímabili var verðmæti þjónustuinnflutnings áætlað 288,5 milljarðar og dróst saman um 30% miðað við sama tímabil árið áður.

Verðmæti útflutnings og innflutnings á þjónustu (milljarðar króna)
  Apríl 2020 Apríl 2021 Breyting, % Maí 2019-apríl 2020 Maí 2020-apríl 2021 Breyting, %
        
Þjónustuútflutningur 18,9 26,2 39 650,5 327,1 -50
Samgöngur og flutningar 4,8 6,7 39 183,0 79,3 -57
Ferðalög 0,9 3,7 307 289,0 50,5 -83
Aðrir þjónustuliðir 13,1 15,7 20 178,4 197,3 11
           
Þjónustuinnflutningur 18,8 27,0 44 413,2 288,5 -30
Samgöngur og flutningar 4,0 5,2 30 78,8 59,4 -25
Ferðalög 2,1 3,8 82 165,0 47,8 -71
Aðrir þjónustuliðir 12,7 18,0 42 169,4 181,4 7
             
Þjónustujöfnuður 0,1 -0,8   237,3 38,6  

Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 62,0 milljarðar króna í apríl 2021 en vöruinnflutningur 67,6 milljarðar. Vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 5,5 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í apríl 2021 var því áætlað 88,2 milljarðar króna og jókst um 32% miðað við sama mánuð 2020. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 94,6 milljarðar og jókst um 37% miðað við sama mánuð 2020.

Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 983,4 milljarðar króna á síðustu tólf mánuðum og dróst saman um 23% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil var áætlað 1.036,9 milljarðar og dróst saman um 10% miðað við tólf mánuði þar á undan. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir síðustu tólf mánuði er því áætlaður neikvæður um 53,6 milljarða króna samanborið við 117,7 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti útflutnings og innflutnings vöru og þjónustu (milljarðar króna)
  Apríl 2020 Apríl 2021 Breyting, % Maí 2019-apríl 2020 Maí 2020-apríl 2021 Breyting, %
Útflutningur á vöru- og þjónustu67,188,2321.274,9983,4-23
Vöruútflutningur48,262,029624,4656,35
Þjónustuútflutningur18,926,239650,5327,1-50
Innflutningur á vöru- og þjónustu69,294,6371.157,21.036,9-10
Vöruinnflutningur50,567,634744,0748,41
Þjónustuinnflutningur18,827,044413,2288,5-30
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði-2,2-6,3 117,7-53,6 

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.