FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 11. MAÍ 2021

Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 53,1 milljarður króna í febrúar 2021 en vöruinnflutningur 59,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 6,8 milljarða króna. Í sama mánuði var þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 4,3 milljarða króna en útflutt þjónusta var áætluð 17,9 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 22,2 milljarðar.

Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í febrúar 2021 var því áætlað 71,1 milljarður króna og dróst saman um 20% miðað við sama mánuð 2020. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 82,1 milljarður og stóð nánast í stað miðað við sama mánuð árið á undan.

Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 965,4 milljarðar króna á síðustu tólf mánuðum og dróst saman um 27% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil var áætlað 1.008,7 milljarðar og dróst saman um 15% miðað við tólf mánuði þar á undan. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir síðustu tólf mánuði er því áætlaður neikvæður um 43,2 milljarða króna samanborið við 133,2 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Verðmæti útflutnings og innflutnings vöru og þjónustu (milljarðar króna)
 Febrúar 2020Febrúar 2021Breyting % Mars 2019-febrúar 2020 Mars 2020-febrúar 2021Breyting %
Útflutningur á vöru- og þjónustu88,971,1-201.319,0965,4-27
Vöruútflutningur46,653,114624,4637,42
Þjónustuútflutningur42,417,9-58694,6328,0-53
Innflutningur á vöru- og þjónustu81,982,101.185,81.008,7-15
Vöruinnflutningur51,159,917749,8726,0-3
Þjónustuinnflutningur30,822,2-28436,0282,7-35
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði7,0-11,1133,2-43,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.