FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 17. MAÍ 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings í febrúar 2022 er áætlað 35,3 milljarðar króna og að það hafi rúmlega tvöfaldast frá því í febrúar 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 13,5 milljarðar í febrúar og að þær hafi aukist verulega samanborið við sama tíma árið 2021. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 9,7 milljarðar króna í febrúar og aukist um 54% miðað við febrúar 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 12,2 milljarðar í febrúar og hafi aukist um 30% frá því í febrúar árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í febrúar er áætlað 38,1 milljarður króna og að það hafi aukist um 79% frá því í febrúar 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 10,8 milljarðar í febrúar og aukist verulega samanborið við febrúar árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 7,1 milljarður í febrúar og aukist um 60% miðað við febrúar 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 20,2 milljarðar í febrúar og aukist um 49% frá því í janúar fyrir ári.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá mars 2021 til febrúar 2022, hafi verið 501,5 milljarðar króna og aukist um 51% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 406,4 milljarðar og aukist um 41% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 66,7 milljarðar króna í febrúar 2022 en vöruinnflutningur 82 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 15,3 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í febrúar 2022 er því áætlað 102,1 milljarður króna og að það hafi aukist um 45% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 120,1 milljarður og jókst um 47% miðað við sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.306 milljarðar króna á síðustu tólf mánuðum og aukist um 35% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.381,4 milljarðar og aukist um 36% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir síðustu tólf mánuði hafi verið neikvæður um 75,4 milljarða króna samanborið við 45,4 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Vöruviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.