Í janúar 2019 var vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* áætlaður 60,4 milljarðar en vöruinnflutningur í greiðslujöfnuði áætlaður 52,1 milljarður. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður jákvæður um 8,3 milljarða. Þjónustujöfnuður í janúar 2019 var áætlaður jákvæður um 11,7 milljarða en útflutt þjónusta var áætluð 43,3 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 31,6 milljarðar.

Í janúar 2019 var því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 103,7 milljarðar en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var 83,7 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður var því áætlaður jákvæður um 20,0 milljarða í janúar 2019.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Þjónustuviðskipti