Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 47,1 milljarður króna í júlí 2020 en vöruinnflutningur í greiðslujöfnuði 58,2 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður neikvæður um 11,0 milljarða króna. Í sama mánuði var þjónustujöfnuður áætlaður jákvæður um 14,7 milljarða króna, en útflutt þjónusta var áætluð 40,8 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 26,1 milljarður.
Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta í júlí 2020 var því áætlað 87,9 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 84,2 milljarðar. Vöru- og þjónustujöfnuður var fyrir vikið áætlaður jákvæður um 3,6 milljarða króna í júlí 2020.
Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 567,2 milljarðar króna á fyrstu sjö mánuðum ársins samanborið við 770,1 milljarð á fyrstu sjö mánuðum ársins 2019. Verðmæti innflutnings var áætlað 564,7 milljarðar borið saman við 706,3 milljarða fyrir sama tímabil 2019. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrstu sjö mánuði ársins 2020 var því áætlaður jákvæður um 2,6 milljarða samanborið við 63,8 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir sama tímabil árið á undan.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til júlí 2019 og 2020 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2019 | 2020 | 2019 | 2020 | ||
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls | 132.688,7 | 87.883,2 | 770.083,9 | 567.227,3 | -26,3 |
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði | 52.368,6 | 47.116,4 | 391.788,9 | 346.821,0 | -11,5 |
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta | 80.320,1 | 40.766,8 | 378.295,0 | 220.406,3 | -41,7 |
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls | 112.387,2 | 84.243,6 | 706.306,3 | 564.651,1 | -20,1 |
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði | 71.152,7 | 58.159,4 | 451.877,5 | 385.396,7 | -14,7 |
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta | 41.234,5 | 26.084,2 | 254.428,9 | 179.254,5 | -29,5 |
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði | 20.301,6 | 3.639,6 | 63.777,6 | 2.576,1 |