FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 20. OKTÓBER 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings í júlí 2022 er áætlað 88,3 milljarðar króna og að það hafi aukist um 54% frá því í júlí 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 47 milljarðar í júlí og að þær hafi aukist um 53% samanborið við sama tíma árið 2021. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 25,4 milljarðar króna í júlí og að þær hafi rétt tæplega tvöfaldast miðað við júlí 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 15,4 milljarðar í júlí og að það hafi aukist um 18% frá því í júlí árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í júlí er áætlað 52,6 milljarðar króna og að það hafi aukist um 61% frá því í júlí 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 21,3 milljarðar í júlí og að þau hafi rétt rúmlega tvöfaldast samanborið við júlí árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 8,1 milljarður í júlí og hafi aukist um 31% miðað við júlí 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 23,2 milljarðar í júlí og hafi aukist um 44% frá því í júí fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 35,7 milljarða króna í júlí.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá ágúst 2021 til júlí 2022, hafi verið 642,9 milljarðar króna og hafi aukist um 68% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 513,1 milljarður og hafi aukist um 66% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 76,2 milljarðar króna í júlí 2022 en vöruinnflutningur 100,4 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 24,2 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í júlí 2022 er því áætlað 164,4 milljarðar króna og að það hafi aukist um 31% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 153 milljarðar og jókst um 39% miðað við sama mánuð 2021. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 11,4 milljarða í júlí 2022 samanborið við 15,3 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.552,6 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu ágúst 2021 til júlí 2022 og hafi aukist um 43% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.593,1 milljarður og hafi aukist um 41% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir þetta tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 40,5 milljarða króna samanborið við 39 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.