Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 53,8 milljarðar króna í maí 2020 en vöruinnflutningur í greiðslujöfnuði 51,3 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði var því áætlaður jákvæður um 2,5 milljarða króna. Í sama mánuði var þjónustujöfnuður áætlaður jákvæður um 0,4 milljarða króna, en útflutt þjónusta var áætluð 20,6 milljarðar á meðan innflutt þjónusta var áætluð 20,2 milljarðar.
Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta í maí 2020 var því áætlað 74,4 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 71,4 milljarðar. Vöru- og þjónustujöfnuður var fyrir vikið áætlaður jákvæður um 2,9 milljarða króna í maí 2020.
Verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta var áætlað 407,4 milljarðar króna á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við 523,6 milljarða á fyrstu fimm mánuðum ársins 2019. Verðmæti innflutnings var áætlað 397,9 milljarðar borið saman við 480,1 milljarð fyrir sama tímabil 2019. Uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrstu fimm mánuði ársins 2020 var því áætlaður jákvæður um 9,4 milljarða samanborið við 43,4 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir sama tímabil árið á undan.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til maí 2019 og 2020 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % | ||||
Maí | Janúar-maí | ||||
2019 | 2020 | 2019 | 2020 | ||
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls | 118.916,3 | 74.381,9 | 523.565,9 | 407.373,9 | -22,2 |
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði | 64.332,8 | 53.762,9 | 292.421,6 | 252.135,0 | -13,8 |
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta | 54.583,5 | 20.619,1 | 231.144,3 | 155.238,9 | -32,8 |
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls | 103.722,6 | 71.449,1 | 480.121,6 | 397.932,1 | -17,1 |
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði | 65.953,9 | 51.254,5 | 305.284,2 | 267.921,0 | -12,2 |
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta | 37.768,7 | 20.194,6 | 174.837,3 | 130.011,1 | -25,6 |
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði | 15.193,7 | 2.932,8 | 43.444,4 | 9.441,8 |