FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 22. FEBRÚAR 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings í nóvemer 2022 er áætlað 55,8 milljarðar króna og að það hafi aukist um 33% frá því í nóbember 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 20,8 milljarður í nóvember og að þær hafi aukist um 49% samanborið við sama tíma árið 2021. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 16,8 milljarðar króna í nóvember og hafi aukist um 44% miðað við nóvember 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 18,2 milljarðar í nóvember og að það hafi aukist um 12% frá því í nóvember árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í nóvember er áætlað 50,9 milljarðar króna og að það hafi aukist um 23% frá því í nóvember 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 17,7 milljarðar í nóvember og að þau hafi aukist um 41% samanborið við nóvember árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 9,8 milljarðar í nóvember og hafi aukist um 22% miðað við nóvember 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 23,3 milljarðar í nóvember og hafi aukist um 13% frá því í nóvember fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 4,9 milljarða króna í nóvember.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá desember 2021 til nóvember 2022, hafi verið 738,2 milljarðar króna og hafi aukist um 56% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 571,8 milljarðar og hafi aukist um 60% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 78,7 milljarðar króna í nóvember 2022 en vöruinnflutningur 109,6 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 31 milljarð króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í nóvember 2022 er því áætlað 134,5 milljarðar króna og að það hafi aukist um 18% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 160,5 milljarðar og jókst um 19% miðað við sama mánuð 2021. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 26 milljarða í nóvember 2022 samanborið við 20,4 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.732,7 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu desember 2021 til nóvember 2022 og hafi aukist um 40% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.784,5 milljarðar og hafi aukist um 42% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir þetta tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 51,8 milljarða króna samanborið við 19 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Þjónustuviðskipti við útlönd eftir mánuðum 2018-2022
Brúartafla vöruviðskipta, þjónustuviðskipta og greiðslujafnaðar eftir mánuðum 2018-2022

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.