FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 16. FEBRÚAR 2024

Verðmæti þjónustuútflutnings í nóvember 2023 er áætlað 57,9 milljarðar króna og að það hafi dregist lítillega saman frá því í nóvember 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 22,5 milljarðar í nóvember og að þær hafi aukist um 5% miðað við nóvember 2022. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 18,7 milljarður króna í nóvember og hafi aukist um 11% miðað við nóvember 2022. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 16,8 milljarðar í nóvember og hafi dregist saman um 16% frá því í nóvember árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í nóvember er áætlað 52,8 milljarðar króna og að það hafi aukist lítillega frá því í nóvember 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 17,5 milljarðar í nóvember og hafi dregist saman um 2% samanborið við nóvember árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 9,7 milljarðar í nóvember og hafi dregist saman um 1% samanborið við nóvember árið áður. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 25,6 milljarðar í nóvember og hafi aukist um 5% frá því í nóvember fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 5,1 milljarð króna í nóvember.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá desember 2022 til nóvember 2023, hafi verið 916,6 milljarðar króna og hafi aukist um 23% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 621 milljarður og hafi aukist um 12% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 85,2 milljarðar króna í nóvember 2023 en vöruinnflutningur 104,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 19,5 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í nóvember 2023 er því áætlað 143,1 milljarður króna og hafi aukist um 4% miðað við sama mánuð 2022. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 157,5 milljarðar og dróst saman um 3% miðað við sama mánuð 2022. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 14,4 milljarða í nóvember 2023 samanborið við 24,5 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2022.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.866,1 milljarður króna á tólf mánaða tímabilinu desember 2022 til nóvember 2023 og hafi aukist um 8% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.866,6 milljarðar og aukist um 6% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir umrætt tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 0,5 milljarða króna samanborið við 29,1 milljarðs neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.