FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JANÚAR 2023

Verðmæti þjónustuútflutnings í október 2022 er áætlað 68,7 milljarðar króna og að það hafi aukist um 42% frá því í október 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 29,1 milljarður í október og að þær hafi aukist um 49% samanborið við sama tíma árið 2021. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 20,7 milljarðar króna í október hafi aukist um 78% miðað við október 2021. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 18,9 milljarðar í október og að það hafi aukist um 10% frá því í október árið áður.

Verðmæti þjónustuinnflutnings í október er áætlað 51,8 milljarðar króna og að það hafi aukist um 30% frá því í október 2021 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 19,2 milljarðar í október og að þau hafi aukist um 50% samanborið við október árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 10 milljarður í október og hafi aukist um 33% miðað við október 2021. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 22,6 milljarðar í október og hafi aukist um 16% frá því í október fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 16,9 milljarða króna í október.

Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2021 til október 2022, hafi verið 726 milljarðar króna og hafi aukist um 60% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 555,7 milljarður og hafi aukist um 62% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.

Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 79,4 milljarðar króna í október 2022 en vöruinnflutningur 129,4 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 50 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í október 2022 er því áætlað 148,1 milljarður króna og að það hafi aukist um 22% miðað við sama mánuð 2021. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 181,1 milljarður og jókst um 51% miðað við sama mánuð 2021. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið neikvæður um 33,1 milljarð í október 2022 samanborið við 1,7 milljarða jákvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2021.

Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.702,7 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu nóvember 2021 til október 2022 og hafi aukist um 44% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.754,8 milljarðar og hafi aukist um 45% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir þetta tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 52,1 milljarð króna samanborið við 26,7 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.