Verðmæti þjónustuútflutnings í janúar 2023 er áætlað 52,8 milljarðar króna og að það hafi aukist um 52% frá því í janúar 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útflutningstekjur af ferðalögum hafi verið um 21,1 milljarður í janúar og að þær hafi rúmlega tvöfaldast samanborið við sama tíma árið 2022. Áætlað er að tekjur af samgöngum og flutningum hafi verið 14,4 milljarðar króna í janúar og hafi aukist um 42% miðað við janúar 2022. Verðmæti annarra þjónustuliða í útflutningi er talið hafa verið 17,3 milljarðar í janúar og að það hafi aukist um 16% frá því í janúar árið áður.
Verðmæti þjónustuinnflutnings í janúar er áætlað 45,1 milljarður króna og að það hafi aukist um 34% frá því í janúar 2022 á gengi hvors árs. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis hafi verið 15,8 milljarðar í janúar og að þau hafi aukist um 62% samanborið við janúar árið áður. Hvað útgjöld vegna samgangna og flutninga varðar er áætlað að þau hafi verið 8,2 milljarðar í janúar og að þau hafi aukist um 30% samanborið við janúar árið áður. Þá er áætlað að verðmæti annarra þjónustuliða í innflutningi hafi verið 21 milljarður í janúar og hafi aukist um 20% frá því í janúar fyrir ári. Þjónustujöfnuður var því jákvæður um 7,8 milljarða króna í janúar.
Gert er ráð fyrir að verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá febrúar 2022 til janúar 2023, hafi verið 756,2 milljarðar króna og hafi aukist um 64% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan. Á sama tímabili er áætlað að verðmæti þjónustuinnflutnings hafi verið 563,1 milljarður og hafi aukist um 48% miðað við tólf mánaða tímabilið þar á undan.
Áætlað er að vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* hafi verið 79,3 milljarðar króna í janúar 2023 en vöruinnflutningur 86,1 milljarður. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að vöruskiptajöfnuður í greiðslujöfnuði hafi verið neikvæður um 6,7 milljarða króna. Verðmæti útflutnings vöru og þjónustu í janúar 2023 er því áætlað 132,2 milljarðar króna og að það hafi aukist um 19% miðað við sama mánuð 2022. Verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta á sama tíma var 131,1 milljarður og jókst um 19% miðað við sama mánuð 2022. Því er áætlað að vöru- og þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um einn milljarð í janúar 2023 samanborið við 1,1 milljarðs jákvæðan jöfnuð fyrir sama mánuð 2022.
Gert er ráð fyrir að verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta hafi verið 1.765,3 milljarðar króna á tólf mánaða tímabilinu febrúar 2022 til janúar 2023 og hafi aukist um 41% miðað við tólf mánuðina þar á undan. Áætlað er að verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta fyrir sama tímabil hafi verið 1.792,9 milljarðar og hafi aukist um 36% miðað við tólf mánuði þar á undan. Því er áætlað að uppsafnaður vöru- og þjónustujöfnuður fyrir þetta tólf mánaða tímabil hafi verið neikvæður um 27,6 milljarða króna samanborið við 62,9 milljarða neikvæðan jöfnuð fyrir tólf mánuðina þar á undan.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.
Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti