FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JANÚAR 2013


Vöruskiptajöfnuður
Í desembermánuði 2012 voru fluttar út vörur fyrir 45 milljarða króna og inn fyrir 41,5 milljarða króna fob (44,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 3,5 milljarða króna. Í desember 2011 voru vöruskiptin hagstæð um rúmar 250 milljónir króna á sama gengi¹.

Allt árið 2012 voru fluttar út vörur fyrir 631,6 milljarða króna en inn fyrir 556,1 milljarð króna fob (tæpa 598 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 75,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 99,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Árið 2012 var verðmæti vöruútflutnings 3,1 milljarði eða 0,5% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,7% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski. Á móti kom samdráttur í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og álafurða.

Innflutningur
Árið 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 20,8 milljörðum eða 3,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning innflutnings varð mest í flutningatækjum en á móti kom samdráttur í verðmæti innflutnings hrá- og rekstrarvara.

Vöruskiptin við útlönd janúar - desember 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-desember
desember  Janúar-desember
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 56.205 45.010 634.700 631.610 -0,5
Innflutningur alls fob 55.948 41.519 535.275 556.074 3,9
Vöruskiptajöfnuður 257 3.491 99.425 75.535 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-desember 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember
Desember Janúar-desember
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 53.682,3 45.010,2 620.127,4 631.609,6 -0,5
Sjávarafurðir 22.340,8 16.639,9 251.572,9 268.627,4 4,3
Landbúnaðarvörur 2.119,0 1.062,6 9.910,5 11.370,7 12,1
Iðnaðarvörur 27.200,6 26.235,2 335.479,2 330.686,5 -3,7
Aðrar vörur 2.021,9 1.072,4 23.164,8 20.925,0 -11,7
Innflutningur alls fob 53.436,4 41.519,1 522.985,3 556.074,3 3,9
Matvörur og drykkjarvörur 3.812,6 3.959,8 47.949,8 50.343,5 2,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.275,5 10.041,2 165.225,2 158.223,3 -6,4
Eldsneyti og smurolíur 5.392,8 5.427,4 76.233,2 84.344,4 8,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.775,3 11.483,0 114.279,5 118.174,8 1,0
Flutningatæki 12.505,6 4.592,5 45.149,8 72.666,5 57,2
Neysluvörur ót.a. 6.746,0 5.955,1 68.536,5 70.848,0 1,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 4.928,7 60,0 5.611,2 1.473,8 -74,3
Vöruskiptajöfnuður 245,9 3.491,1 97.142,1 75.535,2 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,3% hærra mánuðina janúar–desember 2012 en sömu mánuði fyrra árs.
Í desember 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,7% hærra en í desember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.