Á árinu 2013 var seld þjónusta til útlanda fyrir tæpa 482,7 milljarða króna en keypt var þjónusta frá útlöndum fyrir tæpa 334,9 milljarða króna. Þjónustujöfnuður var því hagstæður um 147,8 milljarða króna.
Á árinu 2013 var mest selt til útlanda af samgöngu- og flutningaþjónustu líkt og árið áður. Samgöngu- og flutningaþjónusta var 190,5 milljarðar eða 39,5% af heildarútflutningi þjónustu. Næst samgönguþjónustu kom sala á ferðaþjónustu 131,6 milljarðar eða 27,3% af heildartekjum vegna þjónustuútflutnings á árinu 2013.
Á árinu 2013 var mest keypt frá útlöndum af ferðaþjónustu, 103,5 milljarðar eða 30,9% af heildarinnflutningi þjónustu. Næst á eftir ferðaþjónustu var mest keypt af annarri viðskiptaþjónustu (stærsti liður rekstarleiga), 99,0 milljarðar eða 29,6% af heildarinnflutningi þjónustu. Þar á eftir voru kaup á samgöngu- og flutningaþjónustu, 59,8 milljarða eða 17,9% af heildarinnflutningi þjónustu á þjónustu árið 2013.
Samgöngu- og flutningaþjónusta skiluðu 130,7 milljarða króna afgangi og ferðaþjónusta skilaði 28,1 milljarða króna afgangi. Hins vegar var 60,7 milljarða króna halli af annarri viðskiptaþjónustu.
Þjónustuviðskipti voru mest til og frá ESB ríkjum, 43,9% af útfluttri þjónustu og 62,9% af innfluttri þjónustu. Afgangur var af jöfnuði við ESB sem nam rúmlega 1,1 milljarði á árinu 2013. Innflutningur og útflutningur á þjónustu árið 2013 er, eins og fyrri ár, mest við Bretland, Bandaríkin og Danmörku.
Töflur með ýtarlegri sundurliðun þjónustuflokka og landaskiptingu hafa verið birtar á vef Hagstofunnar.
Nýir staðlar þjónustuviðskipta eru teknir í notkun nú og skiptist þjónusta í tólf flokka árið 2013 í stað þriggja flokka áður. Sambærilegar niðurstöður hafa verið birtar fyrir fyrstu tvo ársfjórðunga 2014. Breytingar vegna nýrra staðla eru eftirfarandi:
- Óbeint mæld fjármálaþjónusta (FISIM) bætist við þjónustuviðskipti. Við útflutning bætast 11,8 milljarðar en við innflutning 6,0 milljarðar á árinu 2013.
- Framleiðsluþjónusta bætist við þjónustuviðskipti. Við útflutning bætast 50,5 milljarðar á árinu 2013.
- Milliliðaþjónusta er ekki lengur talin með í þjónustuviðskiptum en er bætt við vöruskipti í greiðslujöfnuði. Frá útflutningi dragast 13,4 milljarðar á árinu 2013.
- Kaup innlendra aðila (flutningsfara) á eldsneyti erlendis eru ekki lengur talin með í þjónustuviðskiptum en bætast við vöruskipti. Frá innflutningi dragast 13,0 milljarðar á árinu 2014.
Hagstofan gefur út brúartöflu, samhliða þessari útgáfu, til að sýna breytingar á útgefnum tölum á vöru- og þjónustuviðskiptum og tölum um viðskipti eins og þau birtast í greiðslujöfnuði. Brúartaflan verður uppfærð á sama tíma og upplýsingar um þjónustuviðskipti við útlönd eru birt. Stefnt er á að uppfæra tölur á vef Hagstofunnar fyrir árin 2012 og fyrr í september 2015.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2013 eftir flokkunum | |||||
2013 | |||||
Útflutningur | % | Innflutningur | % | Jöfnuður | |
Verðmæti í milljónum króna | |||||
Þjónusta alls | 482.704,4 | 100,0 | 334.878,3 | 100,0 | 147.826,1 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 50.481,9 | 10,5 | 0,0 | 0,0 | 50.481,9 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 4.636,2 | 1,0 | 19.218,4 | 5,7 | -14.582,2 |
3. Samgöngur og flutningar | 190.478,6 | 39,5 | 59.812,5 | 17,9 | 130.666,1 |
4. Ferðalög | 131.556,2 | 27,3 | 103.452,5 | 30,9 | 28.103,7 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 4.205,9 | 0,9 | 1.131,3 | 0,3 | 3.074,6 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 3.599,2 | 0,7 | 6.381,0 | 1,9 | -2.781,8 |
7. Fjármálaþjónusta | 16.381,1 | 3,4 | 9.812,8 | 2,9 | 6.568,2 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 11.089,9 | 2,3 | 9.501,9 | 2,8 | 1.588,0 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 24.210,4 | 5,0 | 19.788,5 | 5,9 | 4.421,9 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 38.257,2 | 7,9 | 98.971,6 | 29,6 | -60.714,4 |
11. Menningar, afþreyingar og persónuleg þjónusta | 5.346,3 | 1,1 | 4.650,2 | 1,4 | 696,1 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 2.461,5 | 0,5 | 2.157,6 | 0,6 | 303,9 |
Þjónustuviðskipti við útlönd árið 2013 eftir markaðssvæðum | |||||
2013 | |||||
Útflutningur | % | Innflutningur | % | Jöfnuður | |
Verðmæti í milljónum króna | |||||
Þjónusta alls | 482.704,4 | 100,0 | 334.878,3 | 100,0 | 147.826,1 |
ESB | 211.738,1 | 43,9 | 210.577,4 | 62,9 | 1.160,6 |
EFTA | 66.064,3 | 13,7 | 22.894,7 | 6,8 | 43.169,6 |
Önnur Evrópulönd | 12.082,1 | 2,5 | 5.472,8 | 1,6 | 6.609,4 |
Bandaríkin | 69.435,2 | 14,4 | 65.096,4 | 19,4 | 4.338,8 |
Kanada | 14.207,6 | 2,9 | 4.159,2 | 1,2 | 10.048,4 |
Önnur lönd | 93.502,3 | 19,4 | 20.373,4 | 6,1 | 73.128,9 |
Ótilgreint á land | 15.674,9 | 3,2 | 6.304,5 | 1,9 | 9.370,4 |
Nýir staðlar við gerð hagskýrslna
Talnaefni