Heildartekjur af þjónustuútflutningi á öðrum ársfjórðungi 2017 voru, samkvæmt bráðabirgðatölum, 162,3 milljarðar króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 101,8 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 60,5 milljarða króna en var jákvæður um 64,6 milljarða á sama tíma árið 2016 á gengi hvors árs. Þjónustujöfnuður við útlönd fyrri helming ársins 2017 var jákvæður um 101,2 milljarða en var jákvæður um 93,3 milljarða á sama tíma árið 2016 á gengi hvors árs.
Ferðaþjónusta var stærsti liðurinn í inn- og útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum og nam afgangur hennar 34 milljörðum. Mestur afgangur var af samgöngum og flutningum eða 43 milljarðar. Mestur halli var af annarri viðskiptaþjónustu eða 11,7 milljarðar.
Talnaefni þjónustuviðskipta við útlönd eftir ársfjórðungum hefur verið samræmt miðað við núverandi staðla og nær nú aftur til ársins 2009.
Þjónustuviðskipti við útlönd með ýtarlegri sundurliðun þjónustuflokka og landaskiptingu fyrir árið 2016 verða birtar á vef Hagstofunnar þann 6. september.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2017 | |||
Alls | 1. ársfj. 2017 | 2. ársfj. 2017 | |
Verðmæti í milljónum króna | |||
Útflutt þjónusta | 286.034,1 | 123.773,8 | 162.260,2 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 | 0,0 | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 2.928,8 | 1.453,4 | 1.475,5 |
3. Samgöngur og flutningar | 101.332,5 | 42.665,8 | 58.666,7 |
4. Ferðalög | 139.396,8 | 58.091,2 | 81.305,6 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 717,4 | 419,8 | 297,6 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 863,3 | 427,7 | 435,6 |
7. Fjármálaþjónusta | 7.871,1 | 3.845,9 | 4.025,2 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 2.893,8 | 1.561,1 | 1.332,7 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 13.654,7 | 6.547,5 | 7.107,3 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 13.464,5 | 7.018,7 | 6.445,8 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 1.625,5 | 1.100,1 | 525,4 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 1.285,6 | 642,7 | 642,9 |
Innflutt þjónusta | 184.833,4 | 83.027,2 | 101.806,2 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 | 0,0 | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 8.993,3 | 4.465,0 | 4.528,3 |
3. Samgöngur og flutningar | 29.509,8 | 13.803,8 | 15.706,0 |
4. Ferðalög | 81.354,1 | 34.098,2 | 47.255,9 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 1.514,3 | 755,2 | 759,0 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 2.329,4 | 1.415,6 | 913,8 |
7. Fjármálaþjónusta | 4.436,1 | 2.073,3 | 2.362,8 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 6.337,8 | 2.527,7 | 3.810,1 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 12.066,7 | 6.080,9 | 5.985,8 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 33.761,0 | 15.586,3 | 18.174,7 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 3.577,0 | 1.762,8 | 1.814,2 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 953,9 | 458,3 | 495,6 |
Þjónustujöfnuður | 101.200,7 | 40.746,6 | 60.454,1 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 | 0,0 | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | -6.064,5 | -3.011,7 | -3.052,8 |
3. Samgöngur og flutningar | 71.822,7 | 28.862,0 | 42.960,7 |
4. Ferðalög | 58.042,7 | 23.993,0 | 34.049,8 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | -796,9 | -335,5 | -461,5 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | -1.466,1 | -987,9 | -478,2 |
7. Fjármálaþjónusta | 3.435,0 | 1.772,6 | 1.662,4 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | -3.444,0 | -966,6 | -2.477,4 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 1.588,1 | 466,6 | 1.121,5 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | -20.296,5 | -8.567,7 | -11.728,8 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | -1.951,5 | -662,7 | -1.288,8 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 331,7 | 184,4 | 147,3 |