Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2014 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 85 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 84,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 842 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi en var neikvæður um 187,4 milljónir á sama tíma 2013 á gengi hvors árs.
Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 14,9 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 15,8 milljörðum. Afgangur af ferðalögum var 1,7 milljarðar.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2014 | |
1. ársfj. 2014 | |
Verðmæti í milljónum króna | |
Útflutt þjónusta | 84.958,8 |
Samgöngur | 38.604,8 |
Ferðalög | 23.845,9 |
Önnur þjónusta | 22.508,1 |
Innflutt þjónusta | 84.116,8 |
Samgöngur | 23.688,7 |
Ferðalög | 22.144,2 |
Önnur þjónusta | 38.283,9 |
Þjónustujöfnuður | 842,0 |
Samgöngur | 14.916,1 |
Ferðalög | 1.701,7 |
Önnur þjónusta | -15.775,8 |
Talnaefni