Útflutningur á þjónustu á öðrum ársfjórðungi 2013 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, tæpir 104 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 83,9 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 20 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi en var jákvæður um 6,6 milljarða á sama tíma 2012 á gengi hvors árs.
Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 23,7 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 9,9 milljörðum. Afgangur á ferðaþjónustu var 6,3 milljarðar.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2013 | |||
Alls | 1. ársfj. 2013 | 2. ársfj. 2013 | |
Verðmæti í milljónum króna | |||
Útflutt þjónusta | 178.338,4 | 74.367,4 | 103.971,0 |
Samgöngur | 86.135,0 | 37.803,8 | 48.331,2 |
Ferðalög | 50.426,4 | 17.873,3 | 32.553,1 |
Önnur þjónusta | 41.777,1 | 18.690,4 | 23.086,7 |
Innflutt þjónusta | 158.452,9 | 74.544,9 | 83.908,0 |
Samgöngur | 47.616,6 | 22.936,3 | 24.680,3 |
Ferðalög | 46.327,2 | 20.096,6 | 26.230,6 |
Önnur þjónusta | 64.509,1 | 31.512,0 | 32.997,2 |
Þjónustujöfnuður | 19.885,4 | -177,5 | 20.063,0 |
Samgöngur | 38.518,3 | 14.867,5 | 23.650,9 |
Ferðalög | 4.099,2 | -2.223,4 | 6.322,6 |
Önnur þjónusta | -22.732,1 | -12.821,6 | -9.910,5 |
Talnaefni