FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2012

Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2012 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 64,5 milljarðar en innflutningur á þjónustu 69,6 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 5,1 milljarð króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 10,1 milljarður. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 8,8 milljarðar. Halli á ferðaþjónustu var um 6,3 milljarðar.

Næsta fréttatilkynning um þjónustuviðskipti við útlönd verður birt þann 31. ágúst. Þar verður að finna heildartölur fyrir árið 2011 og endurskoðaðar niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung auk bráðabirgðatalna fyrir annan ársfjórðung 2012.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2012
  1. ársfj. 2012
Verðmæti í milljónum króna  
Útflutt þjónusta 64.543,9
Samgöngur 32.232,5
Ferðalög 12.386,1
Önnur þjónusta 19.925,3
   
Innflutt þjónusta 69.607,8
Samgöngur 22.146,7
Ferðalög 18.723,6
Önnur þjónusta 28.737,5
   
Þjónustujöfnuður -5.063,8
Samgöngur 10.085,9
Ferðalög -6.337,5
Önnur þjónusta -8.812,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.