Heildartekjur af þjónustuútflutningi á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru, samkvæmt bráðabirgðatölum, 125,8 milljarðar króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 82,8 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 43,1 milljarð króna en var jákvæður um 29,9 milljarða á sama tíma árið 2016 á gengi hvors árs.
Ferðaþjónusta var stærsti liðurinn í inn- og útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum og nam afgangur hennar 23,9 milljörðum. Mestur afgangur var af samgöngum og flutningum eða 29,6 milljarðar. Mestur halli var af annarri viðskiptaþjónustu eða 8 milljarðar.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2017 | |
1. ársfj. 2017 | |
Verðmæti í milljónum króna | |
Útflutt þjónusta | 125.845,5 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 1.325,9 |
3. Samgöngur og flutningar | 43.038,3 |
4. Ferðalög | 58.433,1 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 636,5 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 425,9 |
7. Fjármálaþjónusta | 3.758,6 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 1.568,1 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 6.626,5 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 7.442,8 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 1.999,9 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 590,0 |
Innflutt þjónusta | 82.768,3 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 4.381,2 |
3. Samgöngur og flutningar | 13.399,5 |
4. Ferðalög | 34.513,8 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 806,3 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 1.486,3 |
7. Fjármálaþjónusta | 2.010,7 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 2.239,0 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 6.106,6 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 15.484,0 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 1.917,6 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 423,2 |
Þjónustujöfnuður | 43.077,2 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | -3.055,2 |
3. Samgöngur og flutningar | 29.638,8 |
4. Ferðalög | 23.919,3 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | -169,8 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | -1.060,5 |
7. Fjármálaþjónusta | 1.747,8 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | -670,9 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 519,8 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | -8.041,2 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 82,3 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 166,8 |