FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 01. MARS 2017

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2016 voru heildartekjur af þjónustuútflutningi 648,9 milljarðar en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 388,6 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 260,3 milljarða en var jákvæður um 202 milljarða á árinu 2015 á gengi hvors árs. Þar af skiluðu samgöngur 156,3 milljarða króna afgangi og ferðaþjónusta skilaði 138,6 milljarða afgangi. Á móti nam halli á annarri viðskiptaþjónustu 57,6 milljörðum.

Heildartekjur af þjónustuútflutningi á fjórða ársfjórðungi 2016 voru, samkvæmt bráðabirgðatölum, 142,5 milljarðar króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 99,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 43,4 milljarða króna en var jákvæður um 23,2 milljarða á sama tíma árið 2015 á gengi hvors árs.

Ferðaþjónusta var stærsti liðurinn í inn- og útfluttri þjónustu á ársfjórðungnum og nam afgangur hennar 14,5 milljörðum. Mestur afgangur var af samgöngum og flutningum eða 31,4 milljarðar. Mestur halli var af annarri viðskiptaþjónustu eða 11,7 milljarðar.

Þjónustuviðskipti við útlönd 2016          
  Alls  1. ársfj. 2016 2. ársfj. 2016 3. ársfj. 2016 4. ársfj. 2016
Verðmæti í milljónum króna          
Útflutt þjónusta 648.936,8 113.107,5 163.048,5 230.242,7 142.538,2
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.820,0 3.358,9 3.461,1 0,0 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 6.721,4 1.478,4 1.467,4 1.650,4 2.125,2
3. Samgöngur og flutningar 218.129,6 37.021,6 54.607,8 79.663,9 46.836,3
4. Ferðalög 291.808,2 45.418,6 74.989,2 115.287,3 56.113,1
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 2.321,6 274,8 357,4 552,4 1.137,0
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 2.610,6 678,9 705,5 628,2 598,1
7. Fjármálaþjónusta 14.923,5 3.436,2 3.736,3 3.651,6 4.099,5
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 22.759,0 1.521,6 2.082,6 9.925,5 9.229,4
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 33.042,2 7.526,2 8.639,1 7.689,7 9.187,2
10. Önnur viðskiptaþjónusta 38.742,2 9.332,2 9.480,1 9.240,9 10.689,0
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 8.698,3 2.470,2 2.932,0 1.362,8 1.933,4
12. Opinber þjónusta ót.a. 2.360,1 590,0 590,0 590,0 590,0
           
Innflutt þjónusta 388.596,0 83.248,2 98.225,2 108.012,5 99.110,2
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 18.116,1 4.621,8 5.202,6 4.569,5 3.722,2
3. Samgöngur og flutningar 61.867,0 13.780,9 15.602,9 17.055,1 15.428,0
4. Ferðalög 153.219,4 30.180,4 39.900,8 41.486,0 41.652,2
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 2.813,4 498,3 617,9 832,3 865,0
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 4.819,8 1.681,3 1.031,8 965,8 1.141,0
7. Fjármálaþjónusta 6.903,7 1.436,7 1.128,3 2.331,5 2.007,1
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 11.257,9 3.175,0 2.524,2 2.842,8 2.715,9
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 23.284,8 6.025,3 5.180,3 5.503,6 6.575,5
10. Önnur viðskiptaþjónusta 96.324,2 19.516,2 24.343,6 30.099,4 22.365,0
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 8.055,8 1.975,8 2.007,0 1.979,8 2.093,2
12. Opinber þjónusta ót.a. 1.934,0 356,4 685,6 346,8 545,0
           
Þjónustujöfnuður 260.340,7 29.859,2 64.823,3 122.230,2 43.428,0
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.820,0 3.358,9 3.461,1 0,0 0,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. -11.394,6 -3.143,4 -3.735,2 -2.919,1 -1.596,9
3. Samgöngur og flutningar 156.262,6 23.240,7 39.004,8 62.608,8 31.408,3
4. Ferðalög 138.588,8 15.238,2 35.088,5 73.801,3 14.460,9
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð -491,8 -223,5 -260,5 -279,8 272,0
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta -2.209,2 -1.002,4 -326,3 -337,5 -542,9
7. Fjármálaþjónusta 8.019,9 1.999,5 2.608,0 1.320,0 2.092,4
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 11.501,1 -1.653,5 -441,7 7.082,7 6.513,5
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 9.757,5 1.500,9 3.458,8 2.186,1 2.611,7
10. Önnur viðskiptaþjónusta -57.582,1 -10.184,1 -14.863,5 -20.858,5 -11.676,0
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta 642,5 494,4 925,0 -617,0 -159,8
12. Opinber þjónusta ót.a. 426,1 233,6 -95,6 243,2 45,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.