FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. SEPTEMBER 2022

Tekjur af útfluttri þjónustu á árinu 2021 námu 474,4 milljörðum króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 373 milljörðum. Fyrir vikið var þjónustujöfnuður við útlönd jákvæður um 101,4 milljarða króna samanborið við jákvæðan jöfnuð upp á 69,3 milljarða árið 2020 á gengi hvors árs.

Útflutningstekjur af ferðalögum nær tvöfölduðust á milli ára
Verðmæti þjónustuútflutnings árið 2021 var 95,6 milljörðum króna meira samanborið við árið 2020 eða 25% á gengi hvors árs. Aukinn þjónustuútflutning má einkum rekja til aukningar í tekjum af ferðalögum og samgöngum og flutningum þar sem áhrifa kórónuveirufaraldursins gætti minna en árið áður. Útflutningstekjur af ferðalögum námu 165,4 milljörðum árið 2021 og jukust um 91% samanborðið við árið 2020. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum námu 120,4 milljörðum króna árið 2021 og jukust um 31% samanborið við árið 2020.

Á móti kom að útflutningstekjur af notkun hugverka og af annarri viðskiptaþjónustu drógust nokkuð saman á milli ára. Útflutningstekjur af notkun hugverka námu 36,6 milljörðum króna árið 2021 og drógust þær tekjur saman um 29% á milli ára. Þennan samdrátt má rekja til minni tekna í lyfjaiðnaði. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu námu 60,7 milljörðum árið 2021 og drógust saman um 6% á milli ára. Má einkum rekja þann samdrátt til minnkandi útflutningstekna af rannsókna- og þróunarþjónustu.

Bandaríkin voru stærsta einstaka viðskiptaland í þjónustuútflutningi á árinu 2021 og námu útflutningstekjurnar 130,2 milljörðum króna árið 2021. Útflutningurinn á þjónustu til Bandaríkjanna jókst á milli áranna 2020 og 2021 um 70% á gengi hvors árs. Stærsta skýringin á þessari aukningu er fjölgun bandarískra ferðamanna á Íslandi á árinu 2021 samanborið við árið 2020. Útflutningstekjur til Bretlands námu 48,9 milljörðum króna árið 2021 og stóðu nánast í stað á milli ára en á sama tíma jukust útflutningstekjur til Þýskalands um 13% og námu þær 34,4 milljörðum.

Innflutningur á þjónustu eykst um 21% á milli ára
Árið 2021 var verðmæti þjónustuinnflutnings 63,5 milljörðum króna hærra en árið 2020 eða 21% á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga námu 96,3 milljörðum árið 2021 og jukust um 36% samanborðið við árið 2020. Útgjöld vegna samgangna og flutninga námu 75,1 milljarði króna árið 2021 og jukust um 23% samanborið við árið áður. Útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu námu 85,6 milljörðum árið 2021 og jukust um 12% samanborið við árið á undan. Þessa aukningu á útgjöldum vegna annarrar viðskiptaþjónustu má að mestu rekja til aukningar á útgjöldum vegna sérfræði-, stjórnunar- og ráðgjafaþjónustu.

Stærstu viðskiptalönd í þjónustuinnflutningi á árinu 2021 voru Bandaríkin og Bretland. Gjöld vegna innflutnings á þjónustu frá Bandaríkjunum á árinu 2021 námu 45,6 milljörðum króna og jukust um 7% á milli ára. Á sama tíma námu gjöld vegna innflutnings á þjónustu 45,2 milljörðum og jukust um 24%. Fast á hæla Bretlands og Bandaríkjanna fylgdi svo Holland en innflutningur á þjónustu frá Hollandi jókst um 26% á milli ára.

Töflur með ítarlegri sundurliðun þjónustuflokka og landaskiptingu eru birtar á vef Hagstofunnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.