FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. SEPTEMBER 2026

Tekjur af útfluttri þjónustu á árinu 2025 námu 1.046,4 milljörðum króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 763,8 milljörðum. Fyrir vikið var þjónustujöfnuður við útlönd jákvæður um 282,7 milljarða króna samanborið við jákvæðan jöfnuð upp á 264,8 milljarða árið 2024 á gengi hvors árs.

Útflutningur á þjónustu jókst um 6% á milli ára
Verðmæti þjónustuútflutnings árið 2025 var 63,6 milljörðum króna meira samanborið við árið 2024 og jókst því um 6%, á gengi hvors árs. Mesta aukningin í útflutningi á þjónustu má rekja til tekna af ferðalögum, þ.e. neyslu erlendra ferðamanna á Íslandi. Útflutningstekjur af ferðalögum námu 478,3 milljörðum árið 2025 og jukust um 7% samanborið við árið 2024. Útflutningstekjur af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu námu 101,4 milljörðum og jukust um 38%. Þennan mikla vöxt má rekja að stærstum hluta til aukinna umsvifa fyrirtækja með starfsemi tengda gagnaverum.

Bandaríkin voru stærsta einstaka viðskiptaland í þjónustuútflutningi á árinu 2025 og námu útflutningstekjurnar 325,1 milljarði króna árið 2025. Útflutningurinn á þjónustu til Bandaríkjanna jókst á milli áranna 2024 og 2025 um 3% á gengi hvors árs. Útflutningstekjur frá Bretlandi námu 95,3 milljörðum króna árið 2025 og jukust þær um 11% á milli ára. Á sama tíma jukust útflutningstekjur frá Þýskalandi um 5% og námu þær 65,9 milljörðum.

Innflutningur á þjónustu jókst um 6% á milli ára
Árið 2025 var verðmæti þjónustuinnflutnings 45,8 milljörðum króna meira en árið 2024 eða 6% á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga námu 273,4 milljörðum árið 2025 og jukust um 10% samanborið við árið 2024. Útgjöld vegna samgangna og flutninga námu 123,7 milljörðum króna árið 2025 og drógust saman um 1% samanborið við árið áður. Hins vegar jukust útgjöld vegna fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu um 10% á milli ára, og útgjöldum vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem jukust um 2% á milli ára.

Stærstu viðskiptalönd í þjónustuinnflutningi á árinu 2025 voru sem fyrr Bandaríkin og Bretland. Gjöld vegna innflutnings á þjónustu frá Bandaríkjunum á árinu 2025 námu 91 milljarði króna og jukust lítillega eða um 1% á milli ára. Á sama tíma námu gjöld vegna innflutnings á þjónustu frá Bretlandi 88,1 milljarði og jukust um 4%. Í kjölfar Bretlands og Bandaríkjanna fylgdi svo Holland en innflutningur á þjónustu frá Hollandi jókst um 10% á milli ára.

Töflur með ítarlegri sundurliðun þjónustuflokka og landaskiptingu eru birtar á vef Hagstofunnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.