FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. SEPTEMBER 2017

Á árinu 2016 voru heildartekjur af þjónustuútflutningi 646,5 milljarðar króna en útgjöld vegna innfluttrar þjónustu 389,4 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 257,1 milljarð króna samanborið við 199,4 milljarða afgang árið 2015.

Stærsti tekjuliðurinn voru útflutningstekjur á ferðaþjónustu, 289,3 milljarðar, eða 44,8% af heild en árið 2015 námu þær 213,3 milljörðum á gengi hvors árs. Þjónustuútflutningur á samgöngum og flutningum var 218,1 milljarður króna eða 33,7% af heildarútflutningi en  árið 2015 nam útflutningurinn 205 milljörðum króna, á gengi hvors árs. Þjónustuútflutningur annarrar viðskiptaþjónustu nam 40,6 milljörðum króna eða 6,3% af heildarútflutningi þjónustu árið 2016 sem er nánast sama upphæð og árið áður á gengi hvors árs.

Útgjöld vegna innfluttrar þjónustu á árinu 2016 voru mest vegna ferðaþjónustu,  152 milljarðar króna, eða 39% af heildarinnflutningi þjónustu en námu 131,4 milljörðum króna árið 2015, á gengi hvors árs. Á eftir ferðaþjónustu voru mest útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu, 91,7 milljarðar króna eða 23,5% af heildarinnflutningi þjónustu en námu 100,1 milljarði króna árið 2015, á gengi hvors árs. Rekstrarleiga er stærsti liður annarrar viðskiptaþjónustu. Útgjöld vegna samgangna og flutninga námu 64,3 milljörðum króna eða 16,5% af heildar þjónustuinnflutningi árið 2016. Árið 2015 námu þau kaup 64,7 milljörðum króna, á gengi hvors árs.

Afgangur vegna ferðaþjónustu árið 2016 nam 137,3 milljörðum króna en mestur afgangur var af samgöngum og flutningum eða 153,8 milljarðar króna. Mestur halli var vegna annarrar viðskiptaþjónustu eða 51,1 milljarður króna. Til samanburðar var afgangur af samgöngum og flutningum 139,3 milljarðar króna árið 2015 og afgangur vegna ferðaþjónustu tæpir 82 milljarðar króna, á gengi hvors árs. Halli af annarri viðskiptaþjónustu nam aftur á móti 60,1 milljarði króna árið 2015.

Þjónustuviðskipti voru mest til og frá aðildarríkjum ESB, eða 46,6% af útfluttri þjónustu og 64,4% af innfluttri þjónustu. Inn- og útflutningur á þjónustu árið 2016 við einstök lönd var mest við Bretland og Bandaríkin, líkt og fyrri ár.

Töflur með ýtarlegri sundurliðun þjónustuflokka og landaskiptingu eru birtar á vef Hagstofunnar.

Þjónustuviðskipti við útlönd eftir flokkunum 2016        
  Útflutningur % Innflutningur % Jöfnuður
Verðmæti í milljónum króna          
Þjónusta alls 646.453,2 100,0 389.378,0 100,0 257.075,1
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara 6.820,0 1,1 0,0 0,0 6.820,0
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. 7.548,5 1,2 19.276,0 5,0 -11.727,4
3. Samgöngur og flutningar 218.140,4 33,7 64.318,8 16,5 153.821,6
4. Ferðalög 289.337,9 44,8 152.026,2 39,0 137.311,7
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð 1.992,5 0,3 3.354,3 0,9 -1.361,8
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta 1.876,8 0,3 4.287,4 1,1 -2.410,6
7. Fjármálaþjónusta 14.714,3 2,3 8.463,5 2,2 6.250,8
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. 22.609,3 3,5 12.664,6 3,3 9.944,7
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta 33.502,6 5,2 23.485,2 6,0 10.017,4
10. Önnur viðskiptaþjónusta 40.566,1 6,3 91.673,8 23,5 -51.107,7
11. Menningar, afþreyingar og persónuleg þjónusta 6.809,8 1,1 7.957,5 2,0 -1.147,7
12. Opinber þjónusta ót.a. 2.534,9 0,4 1.870,7 0,5 664,2
Þjónustuviðskipti við útlönd árið eftir markaðssvæðum 2016      
  Útflutningur % Innflutningur % Jöfnuður
Verðmæti í milljónum króna          
Þjónusta alls 646.453,1 100,0 389.378,0 100,0 257.075,1
ESB 301.001,3 46,6 250.641,7 64,4 50.359,6
EFTA 44.061,3 6,8 24.364,3 6,3 19.696,9
Önnur Evrópulönd 7.226,3 1,1 7.907,0 2,0 -680,6
Bandaríkin 175.411,9 27,1 75.915,1 19,5 99.496,8
Kanada 30.496,7 4,7 7.306,9 1,9 23.189,8
Önnur lönd 82.289,5 12,7 20.505,4 5,3 61.784,1
Ótilgreint á land 5.966,2 0,9 2.737,7 0,7 3.228,5

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.