Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi var samkvæmt bráðabirgðatölum 92,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 71,5 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 20,8 milljarða króna.
Samgöngur vega mest þjónustuliða og mestur afgangur varð vegna þeirrar þjónustu, eða um 11,9 milljarðar en afgangur vegna ferðaþjónustu reyndist vera um 10,9 milljarðar. Aftur á móti var halli á annarri þjónustu en samgöngum og ferðaþjónustu um tæpan 2,1 milljarð.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2009 | ||||
1. ársfj. | 2. ársfj. | 3. ársfj. | Alls | |
Verðmæti í milljónum króna á gengi hvers ársfjórðungs | ||||
Útflutt þjónusta | 49.779,1 | 72.188,5 | 92.252,3 | 214.219,9 |
Samgöngur | 22.541,4 | 29.073,3 | 38.094,0 | 89.708,7 |
Ferðalög | 10.556,7 | 19.974,3 | 35.545,0 | 66.076,0 |
Önnur þjónusta | 16.680,9 | 23.141,0 | 18.613,3 | 58.435,2 |
Innflutt þjónusta | 51.494,8 | 60.590,7 | 71.489,0 | 183.574,5 |
Samgöngur | 17.932,7 | 20.378,5 | 26.162,5 | 64.473,7 |
Ferðalög | 16.740,9 | 21.276,0 | 24.635,1 | 62.652,0 |
Önnur þjónusta | 16.821,2 | 18.936,2 | 20.691,4 | 56.448,8 |
Þjónustujöfnuður | -1.715,7 | 11.597,9 | 20.763,2 | 30.645,4 |
Samgöngur | 4.608,7 | 8.694,8 | 11.931,5 | 25.235,1 |
Ferðalög | -6.184,2 | -1.301,7 | 10.909,8 | 3.424,0 |
Önnur þjónusta | -140,3 | 4.204,8 | -2.078,1 | 1.986,3 |
Talnaefni