FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 26. ÁGÚST 2010

Útflutningur á þjónustu á öðrum ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 79,6 milljarðar en innflutningur á þjónustu 66,0 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi var því jákvæður um 13,6 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 10,6 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam afgangur á þeirri þjónustu um 3,1 milljarði. Halli á ferðaþjónustu var um 0,1 milljarður.

Þjónustuviðskipti við útlönd      
  Alls 1. ársfj. 2010 2. árfj. 2010
Verðmæti í milljónum króna á gengi hvers ársfjórðungs  
Útflutt þjónusta 139.801,3 60.190,9 79.610,5
Samgöngur 57.450,5 25.498,1 31.952,5
Ferðalög 33.575,0 12.247,9 21.327,1
Önnur þjónusta 48.775,8 22.444,9 26.330,9
       
Innflutt þjónusta 127.487,9 61.440,6 66.047,3
Samgöngur 39.997,5 18.609,3 21.388,1
Ferðalög 40.099,2 18.674,9 21.424,3
Önnur þjónusta 47.391,2 24.156,3 23.234,8
       
Þjónustujöfnuður 12.313,5 -1.249,7 13.563,2
Samgöngur 17.453,1 6.888,7 10.564,3
Ferðalög -6.524,2 -6.427,0 -97,2
Önnur þjónusta 1.384,6 -1.711,5 3.096,1

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.