FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 26. FEBRÚAR 2010

Útflutningur á þjónustu á fjórða ársfjórðungi var samkvæmt bráðabirgðatölum 71,1 milljarður en innflutningur á þjónustu 63,1 milljarður króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fjórða ársfjórðungi var því jákvæður um 8,0 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliðurinn og mestur afgangur varð vegna þeirrar þjónustu, eða um 10,7 milljarðar en afgangur vegna annarar þjónustu reyndist vera um 8,1 milljarður. Aftur á móti var halli á ferðaþjónustu um tæpa 10,8 milljarða.

Samkvæmt bráðabirgðatölum er því útflutningur á þjónustu á árinu 2009 280,4 milljarðar en innflutningur á þjónustu 241,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd á árinu 2009 var því jákvæður um 39,3 milljarða.

Samgöngur skiluðu 35,9 milljarða afgangi á árinu 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum og önnur þjónusta skilaði 11 milljarða afgangi. Á móti kom að halli var á ferðaþjónustu um 7,6 milljarða.

Tölur um þjónustujöfnuð við útlönd fyrir árið 2009 eftir ítarlegri flokkun og löndum verða birtar 26. ágúst 2010.

Þjónustuviðskipti við útlönd
  1. ársfj. 2009 2. ársfj. 2009 3. ársfj. 2009 4. ársfj. 2009 Alls
Verðmæti í milljónum króna á gengi hvers ársfjórðungs
Útflutt þjónusta 48.750,9 71.115,0 89.387,9 71.137,5 280.391,2
Samgöngur 22.532,7 29.024,9 37.895,1 31.500,7 120.953,4
Ferðalög 8.816,8 18.114,3 33.111,1 10.347,7 70.389,9
Önnur þjónusta 17.401,5 23.975,7 18.381,7 29.289,0 89.047,9
Innflutt þjónusta 50.524,8 58.821,0 68.592,5 63.119,7 241.058,0
Samgöngur 17.932,7 20.378,5 26.018,1 20.766,5 85.095,9
Ferðalög 15.265,1 19.411,1 22.159,5 21.126,3 77.961,9
Önnur þjónusta 17.327,0 19.031,4 20.414,9 21.226,9 78.000,2
Þjónustujöfnuður -1.773,8 12.294,0 20.795,4 8.017,8 39.333,3
Samgöngur 4.600,0 8.646,4 11.877,0 10.734,2 35.857,6
Ferðalög -6.448,3 -1.296,8 10.951,6 -10.778,5 -7.572,0
Önnur þjónusta 74,5 4.944,3 -2.033,3 8.062,2 11.047,7

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.