FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 02. JÚNÍ 2010

Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 57,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 60,9 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 3,6 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 6,8 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 2,3 milljörðum. Halli á ferðaþjónustu var um 8,1 milljarður.

Í næstu fréttatilkynningu um þjónustuviðskipti við útlönd, þann 26. ágúst, verða birtar tölur um árið 2009 með endurskoðuðum niðurstöðum fyrir hvern ársfjórðung auk bráðabirgðatalna um annan ársfjórðung 2010.

Þjónustuviðskipti við útlönd
  1. ársfj. 2010
Verðmæti í milljónum króna
Útflutt þjónusta 57.258,0
Samgöngur 25.471,8
Ferðalög 10.595,1
Önnur þjónusta 21.191,1
Innflutt þjónusta 60.861,9
Samgöngur 18.708,5
Ferðalög 18.666,7
Önnur þjónusta 23.486,7
Þjónustujöfnuður -3.603,9
Samgöngur 6.763,3
Ferðalög -8.071,6
Önnur þjónusta -2.295,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.