FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. MAÍ 2005

Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,1 milljarð króna og inn fyrir 21,5 milljarða króna fob. Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 4,4 milljarða króna en í apríl árið áður voru þau óhagstæð um 2,9 milljarða á föstu gengi¹.  

Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 63,8 milljarða króna en inn fyrir 79,8 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 16,0 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 3,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 12,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 1,2 milljörðum eða 2,0% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,5% hærra en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 35% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,5% hærra en árið áður. Aukning varð í útflutningi á heilum frystum fiski og áli en útflutningur lyfja og lækningatækja dróst saman.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 13,8 milljörðum eða 21,0% meira á föstu gengi1 en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, sérstaklega fólksbílum, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.