FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2006


Vöruskiptajöfnuður

Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,7 milljarða króna og inn fyrir 27,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 9,7 milljarða króna en í apríl árið áður voru þau óhagstæð um 5,4 milljarða króna á föstu gengi¹.
Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 66,4 milljarða króna en inn fyrir 108,0 milljarða króna fob. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 41,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 20,6 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 1,2 milljörðum eða 1,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 58% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,1% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,1% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkandi álverðs.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 22,2 milljörðum eða 25,9% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.

Vöruskiptin við útlönd janúar–apríl 2006
Millj. kr á gengi ársins 2006 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 19.639 17.677 65.212 66.427 1,9
Innflutningur alls fob 25.011 27.345 85.790 108.037 25,9
Vöruskiptajöfnuður -5.372 -9.668 -20.578 -41.610 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–apríl 2005 og 2006
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl
Apríl Janúar-apríl
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 17.199,9 17.676,6 64.147,3 66.426,5 1,9
Sjávarafurðir 9.829,3 10.012,3 38.218,5 38.431,5 -1,1
Landbúnaðarvörur 273,0 288,0 1.387,9 1.424,6 1,0
Iðnaðarvörur 6.141,8 7.074,1 22.655,5 25.361,7 10,1
Aðrar vörur 955,8 302,1 1.885,4 1.208,7 -36,9
Innflutningur alls fob 21.905,1 27.344,5 84.389,0 108.036,6 25,9
Matvörur og drykkjarvörur 1.521,7 1.799,5 6.044,1 6.360,3 3,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.153,6 8.146,8 20.467,9 29.296,3 40,8
Eldsneyti og smurolíur 1.030,2 293,0 7.065,9 7.793,6 8,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 4.733,7 8.065,6 17.740,5 28.202,0 56,4
Flutningatæki 4.608,3 4.836,3 18.797,2 20.138,2 5,4
Neysluvörur ót.a. 3.824,9 4.170,4 14.166,3 16.128,9 12,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 32,7 33,1 107,1 117,3 7,7
Vöruskiptajöfnuður -4.705,2 -9.667,9 -20.241,8 -41.610,1 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,7% hærra mánuðina janúar–apríl 2006 en sömu mánuði fyrra árs.
Í apríl 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 14,2% hærra en í apríl árið áður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.