FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 18. FEBRÚAR 2005
Vöruskiptajöfnuður
Allt árið 2004 voru fluttar út vörur fyrir 202,4 milljarða króna en inn fyrir 240,2 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 37,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 16,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,1 milljarði króna lakari árið 2004 en árið 2003.
     Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,9 milljarða króna og inn fyrir 20,9 milljarða króna fob. Vöruskiptin í desember voru því óhagstæð um 4,0 milljarða króna en í desember árið áður voru þau óhagstæð um 2,3 milljarða á föstu gengi¹. 

Útflutningur
Allt árið 2004 var heildarverðmæti vöruútflutnings 22,3 milljörðum eða 12,4% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,5% (9,6 milljörðum) meira en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök og saltaður og/eða þurrkaður fiskur. Aukningu sjávarafurða má einna helst rekja til aukins verðmætis fersks fisks en einnig varð aukning í útflutningi á saltfiski og frystum flökum. Á móti kom samdráttur í útflutningi lýsis. Útfluttar iðnaðarvörur voru 35% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16,5% (10,1 milljarði) meira en árið áður. Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra iðnaðarvara má einna helst rekja til aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum, áli og öðrum iðnaðarvörum.
 
Innflutningur
Heildarverðmæti vöruinnflutnings árið 2004 var 43,3 milljörðum eða 22,0% meira á föstu gengi1 en árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2004 voru hrá- og rekstrarvara með 25% hlutdeild, fjárfestingarvara með 22% hlutdeild og neysluvara (önnur en mat- og drykkjarvara) með 18% hlutdeild. Aukning varð í flestum liðum innflutnings. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í innflutningi á flutningatækjum, 50% (13,3 milljarðar), hrá og rekstrarvöru, 16,8% (8,8 milljarðar) og fjárfestingarvöru 16,2% (7,4 milljarðar). Að öðru leyti má rekja aukninguna til eldsneyti og smurolíu, neysluvöru og mat- og drykkjarvöru.



Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.