FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. JÚLÍ 2006


Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða króna og inn fyrir 38,1 milljarð króna fob (41,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna en það er mesti halli í einum mánuði frá því Hagstofan fór að birta tölur um vöruskiptin eftir mánuðum. Í júní 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 8,1 milljarð króna á föstu gengi¹.

Fyrstu sex mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 114,3 milljarða króna en inn fyrir 181,2 milljarða króna fob (196,5 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 66,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 29,4 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 5,3 milljörðum eða 4,9% meira á föstu gengi¹en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 55,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski og söltuðum og/eða þurrkuðum fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi fiskimjöls. Útfluttar iðnaðarvörur voru 39,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkandi álverðs.

Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sex mánuði ársins var 34,7 milljörðum fob eða 23,7% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.

Vöruskiptin við útlönd janúar–júní 2006
Millj. kr á gengi ársins 2006 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar-júní
Júní  Janúar-júní
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 26.762 22.347 108.990 114.314 4,9
Innflutningur alls fob 34.889 38.072 146.426 181.155 23,7
Vöruskiptajöfnuður -8.127 -15.725 -37.436 -66.841 ·


Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júní 2005 og 2006
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní
júní Janúar-júní
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 22.696,7 22.346,8 102.656,2 114.313,6 4,9
Sjávarafurðir 10.202,1 11.687,4 58.887,6 63.862,9 2,1
Landbúnaðarvörur 236,7 241,4 1.903,7 1.956,5 -3,2
Iðnaðarvörur 5.989,0 10.067,5 33.325,5 44.715,3 26,4
Aðrar vörur 6.268,9 350,5 8.539,3 3.778,9 -58,3
Innflutningur alls fob 29.589,6 38.072,2 137.916,8 181.155,1 23,7
Matvörur og drykkjarvörur 1.885,3 1.838,9 9.831,4 10.515,5 0,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.265,2 8.804,0 32.597,4 48.544,6 40,3
Eldsneyti og smurolíur 2.213,8 4.529,4 11.771,6 14.417,7 15,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.661,8 11.592,6 29.164,3 48.908,1 57,9
Flutningatæki 8.593,1 6.555,7 32.538,7 32.419,7 -6,2
Neysluvörur ót.a. 3.959,4 4.728,9 21.861,0 26.119,9 12,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 11,0 22,9 152,3 229,4 41,8
Vöruskiptajöfnuður -6.893,0 -15.725,5 -35.260,6 -66.841,5 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 6,2% hærra mánuðina janúar–júní 2006 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júní 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 17,9% hærra en í júní árið áður.

Vöruskiptiwindows-1252124HTTP://www.hagstofa.is/temp/database/utanrikisverslun/voruskipti/voruskipti.asp5000false742Útflutningurwindows-1252124HTTP://www.hagstofa.is/temp/database/utanrikisverslun/utflutningur/utflutningur.asp5000false744Innflutningurwindows-1252124HTTP://www.hagstofa.is/temp/database/utanrikisverslun/innflutningur/innflutningur.asp5000false745

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.