FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. APRÍL 2005

Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,4 milljarða króna og inn fyrir 22,3 milljarða króna fob. Vöruskiptin í mars voru því óhagstæð um 5,9 milljarða króna en í mars árið áður voru þau óhagstæð um 0,9 milljarða á föstu gengi¹.  

Fyrstu þrjá mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 46,7 milljarða króna en inn fyrir 58,3 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 11,6 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 0,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 11,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 0,6 milljörðum eða 1,2% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra nær hið sama og á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 35% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,3% minna en árið áður. Útflutningur lyfja og lækningatækja dróst saman en útflutningur á frystum heilum fiski og áli jókst.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 10,5 milljörðum eða 22,0% meira á föstu gengi1 en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.