FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 20. MAÍ 2005

Út er komið hefti í efnisflokknum Utanríkisverslun og ber það heitið Utanríkisverslun með vörur 2004. Í ritinu kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 202,4 milljarða króna en inn fyrir 240,2 milljarða króna fob, 260,4 milljarða króna cif. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 37,8 milljörðum króna fob. Útflutningur jókst um 11% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs, en innflutningur jókst um 20%. Í útflutningi voru sjávarafurðir 60% alls útflutnings og iðnaðarvörur 35% en í innflutningi voru stærstu vöruflokkar hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og neysluvörur. Stærstu viðskiptalönd voru Bretland, Þýskaland og Holland í útflutningi og Þýskaland, Bandaríkin og Noregur í innflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í útflutningi sem í innflutningi.
     Samhliða útgáfu heftisins eru birtar sundurliðaðar töflur um utanríkisverslunina 2004 á vef hagstofunnar, svo sem eftir ýmsum flokkunarkerfum utanríkisverslunar, eftir markaðssvæðum, ýtarlegar upplýsingar um utanríkisverslunina eftir tollskrárnúmerum og löndum og eftir einstökum löndum og vöruflokkum.

Utanríkisverslun með vörur 2004 - útgáfur  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.