FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 23. MAÍ 2007

Út er komið heftið Utanríkisverslun með vörur 2006. Í ritinu kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 242,7 milljarða króna en inn fyrir 401,2 milljarða króna fob, 432,1 milljarða króna cif. Innflutningstölurnar eru hærri en áður útgefnar tölur um árið 2006 vegna upplýsinga um innflutning sem bárust eftir þær voru birtar. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 158,5 milljörðum króna. Útflutningur jókst um 24,9% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs og innflutningur jókst um 37,7%. Í útflutningi voru sjávarafurðir 51% alls útflutnings, iðnaðarvörur 38% en í innflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og flutningatæki. Stærstu viðskiptalönd voru Holland í útflutningi og Bandaríkin í innflutningi og var EES þýðingamesta markaðssvæðið, jafnt í útflutningi sem í innflutningi.

Samhliða útgáfu heftisins eru birtar sundurliðaðar töflur um utanríkisverslunina 2006 á vef Hagstofunnar, til dæmis eftir ýmsum flokkunarkerfum utanríkisverslunar, ýtarlegar upplýsingar um utanríkisverslunina eftir tollskrárnúmerum og löndum og eftir einstökum löndum og vöruflokkum.

Utanríkisverslun með vörur 2006 - Hagtíðindi

Utanríkisverslun eftir tollskrárnúmerum 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.