FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2010

Út er komið heftið Utanríkisverslun með vörur 2009. Í ritinu kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 500,9 milljarða króna en inn fyrir 410,6 milljarða króna fob, 446,1 milljarð króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd í fyrsta skipti síðan 2002, reiknað á fob verðmæti, sem nam 90,3 milljörðum króna. Útflutningur jókst um 7,3% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs en innflutningur dróst saman um 13,3%. Hlutur sjávarafurða var 41,7% og iðnaðarvöru 48,6% en í innflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og neysluvörur aðrar en mat- og drykkjarvörur. Stærstu viðskiptalönd voru Holland í útflutningi og Noregur í innflutningi og var EES þýðingamesta markaðssvæðið, jafnt í útflutningi sem innflutningi.

Samhliða útgáfu heftisins eru birtar sundurliðaðar töflur með endanlegum tölum fyrir árið 2009 á vef Hagstofunnar. Athygli skal vakin á því að Hagstofan hefur nú leiðrétt útflutning á fiskimjöli sem var rangt skráð á tollskýrslu sem hvalmjöl.

Utanríkisverslun með vörur 2009 - Hagtíðindi

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.