Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 150,2 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 2020 en vöruinnflutningur 168,8 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður var því áætlaður neikvæður um 18,6 milljarða króna. Á sama ársfjórðungi var þjónustujöfnuður áætlaður jákvæður um 24 milljarða. Útflutt þjónusta var áætluð 115,5 milljarðar en innflutt þjónusta 91,4 milljarðar.
Á fyrsta ársfjórðungi 2020 var því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 265,7 milljarðar samanborið við 308,4 milljarða árið áður. Á sama tíma var áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 260,2 milljarðar samanborið við 276,7 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður var því áætlaður jákvæður um 5,5 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2020 en var jákvæður um 31,7 milljarðar á sama tíma 2019.
Útflutningstekjur af ferðaþjónustu og samgöngum lækka á milli ára
Verðmæti þjónustuútflutnings var 16,3 milljörðum króna lægra á fyrsta ársfjórðungi 2020 en á sama tíma árið áður, eða 12,4% á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðaþjónustu lækka á milli ára um 19,4 milljarða króna eða 29,3% á gengi hvors árs fyrir sig. Tekjur af samgöngum og flutningum lækka einnig á sama tíma um 13,1% eða 5 milljarða króna á gengi hvors árs. Vegur þar þyngst samdráttur í tekjum af farþegaflutningum með flugi.
Verðmæti þjónustuútflutnings til Evrópu á fyrsta ársfjórðungi 2020 nam 59,2 milljörðum króna eða 51,3% af heildarverðmæti þjónustuútflutnings. Þar af var þjónustuútflutningur til Bretlands 19,5 milljarðar króna eða 16,9% af heildarverðmæti. Á sama tíma nam verðmæti þjónustuútflutnings til Bandaríkjanna 30,5 milljörðum króna eða 26,4% af heildarþjónustuútflutningi.
Verðmæti þjónustuinnflutnings lækkar á milli ára
Verðmæti þjónustuinnflutnings var 10,8 milljörðum króna lægra á fyrsta ársfjórðungi 2020 en á sama tíma árið áður eða 10,6% á gengi hvors árs fyrir sig. Útgjöld vegna innfluttrar ferðaþjónustu námu 35,5 milljörðum króna og lækka um 5,9 milljarða á milli ára eða 14,3% á gengi hvors árs.
Verðmæti þjónustuinnflutnings frá Evrópu nam 68,8 milljörðum króna eða 75,3% af heildarverðmæti þjónustuinnflutnings. Þar af var þjónustuinnflutningur frá Bretlandi 13,5 milljarðar króna eða 14,8% af heildarinnflutningi. Fyrir sama tímabil nam verðmæti þjónustuinnflutnings frá Bandaríkjunum 15,1 milljarði króna eða 16,5% af heildarverðmæti innflutnings.
Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2020.
Í mars var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 86,7 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 96,8 milljarðar króna. Vöru- og þjónustujöfnuður var því áætlaður neikvæður um 10,1 milljarða króna í mars 2020.
Tölur 2019 miða við uppfærð gögn um vöruviðskipti.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga
Verðmæti útflutnings og innflutnings á þjónustu - 1. ársfjórðungur 2019 og 2020 | |||
1. ársfjórðungur | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % 1. ársfjórðungur | ||
2019 | 2020 | ||
Útflutt þjónusta | 131.777,6 | 115.465,2 | -12,4 |
Samgöngur og flutningar | 38.446,3 | 33.422,5 | -13,1 |
Ferðalög | 66.107,6 | 46.740,9 | -29,3 |
Önnur viðskiptaþjónusta | 9.399,9 | 10.918,8 | 16,2 |
Aðrir þjónustuliðir | 17.823,8 | 24.382,9 | 36,8 |
Innflutt þjónusta | 102.228,1 | 91.418,6 | -10,6 |
Samgöngur og flutningar | 18.188,2 | 16.650,8 | -8,5 |
Ferðalög | 41.468,5 | 35.528,6 | -14,3 |
Önnur viðskiptaþjónusta | 15.801,3 | 15.586,9 | -1,4 |
Aðrir þjónustuliðir | 26.770,1 | 23.652,3 | -11,6 |
Þjónustujöfnuður | 29.549,6 | 24.046,6 |