Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* var áætlaður 165,0 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 en vöruinnflutningur 186,8 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður var því áætlaður neikvæður um 21,9 milljarða króna. Á sama ársfjórðungi var þjónustujöfnuður áætlaður neikvæður um 10,9 milljarða. Útflutt þjónusta var áætluð 58,7 milljarðar króna en innflutt þjónusta 69,6 milljarðar.
Á fyrsta ársfjórðungi 2021 var því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 223,6 milljarðar króna samanborið við 264,2 milljarða á fyrsta ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma var áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 256,4 milljarðar samanborið við 265,1 milljarð á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður var því áætlaður neikvæður um 32,8 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 en var neikvæður um 0,9 milljarða á sama tíma 2020.
Seinustu tólf mánuði var vöru- og þjónustujöfnuðurinn neikvæður um 49,4 milljarða en var jákvæður um 117,0 milljarða tólf mánuðina þar á undan.
Verðmæti útflutnings og innflutnings vöru og þjónustu (milljarðar króna) | ||||||
1. ársfj. 2020 | 1. ársfj. 2021 | Breyting % | 2. ársfj. 2019 - 1. ársfj. 2020 | 2. ársfj. 2020 - 1. ársfj. 2021 | Breyting % | |
Útflutningur á vöru- og þjónustu | 264,2 | 223,6 | -15 | 1.304,3 | 962,2 | -26 |
Vöruútflutningur | 151,1 | 165,0 | 9 | 627,7 | 642,4 | 2 |
Þjónustuútflutningur | 113,1 | 58,7 | -48 | 676,6 | 319,8 | -53 |
Innflutningur á vöru- og þjónustu | 265,1 | 256,4 | -3 | 1.187,3 | 1.011,6 | -15 |
Vöruinnflutningur | 174,4 | 186,8 | 7 | 759,2 | 731,3 | -4 |
Þjónustuinnflutningur | 90,7 | 69,6 | -23 | 428,1 | 280,3 | -35 |
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði | -0,9 | -32,8 | 117,0 | -49,4 |
Verðmæti þjónustuútflutnings dróst saman um 53% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á fyrsta ársfjórðungi dróst saman um 54,5 milljarða króna, eða um 48%, frá fyrsta ársfjórðungi 2020 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum drógust saman um 38,8 milljarða eða um 87% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2020. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust einnig töluvert saman á milli ára eða um 13,9 milljarða (-42%). Samdráttur í útflutningstekjum af farþegaflutningum með flugi vó þar þyngst en þær drógust saman um 91%. Á móti kom að útflutningstekjur af annari viðskiptaþjónustu jukust um 1,3 milljarða, eða 12%, miðað við fyrsta ársfjórðung 2020.
Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2020 til mars 2021, var 319,8 milljarðar og minnkaði um 356,8 milljarða króna miðað við sama tímabil árið áður eða um 53% á gengi hvors árs. Þar vó þyngst samdráttur í útflutningstekjum af ferðalögum um 85% og útflutningstekjum af samgöngum um 60%. Að sama skapi jukust útflutningstekjur af gjöldum vegna notkunar hugverka um 37% sem skýrist af vaxandi tekjum í lyfjaiðnaði. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu jukust um 24% sem skýrist bæði af auknum útflutningstekjum af rannsókna- og þróunarþjónustu og útflutningstekjum af tækniþjónustu, sölutengdri þjónustu og annari viðskiptaþjónustu.
Verðmæti þjónustuinnflutnings dróst saman um 35% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á fyrsta ársfjórðungi dróst saman um 21,2 milljarða króna, eða um 23%, frá fyrsta ársfjórðungi 2020 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis drógust saman um 22,9 milljarða, eða um 69%, samanborið við fyrsta ársfjórðung 2020. Útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust einnig nokkuð saman á milli ára, um 2,9 milljarða eða 17%. Á móti kom að þjónustuinnflutningur á annarri viðskiptaþjónustu jókst um 1,9 milljarða eða 12%.
Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2020 til mars 2021, var 280,3 milljarðar og minnkaði um 147,8 milljarða króna miðað við sama tímabil árið áður eða um 35% á gengi hvors árs. Vó þar þyngst að útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis drógust saman um 74% á umræddu tólf mánaða tímabili. Útgjöld vegna samgangna og flutninga drógust svo saman um 29% á meðan þjónustuinnflutningur á annarri viðskiptaþjónustu jókst um 10%.
Verðmæti útflutnings og innflutnings á þjónustu (milljarðar króna) | ||||||
1. ársfj. 2020 | 1. ársfj. 2021 | Breyting % | 2. ársfj. 2019 - 1. ársfj. 2020 | 2. ársfj. 2020 - 1. ársfj. 2021 | Breyting % | |
Þjónustuútflutningur | 113,1 | 58,7 | -48 | 676,6 | 319,8 | -53 |
Samgöngur og flutningar | 33,3 | 19,4 | -42 | 191,5 | 77,4 | -60 |
Ferðalög | 44,8 | 6,0 | -87 | 308,6 | 47,7 | -85 |
Gjöld fyrir notkun hugverka | 3,3 | 1,9 | -41 | 36,3 | 49,6 | 37 |
Önnur viðskiptaþjónusta | 11,1 | 12,4 | 12 | 50,9 | 63,1 | 24 |
Aðrir þjónustuliðir | 20,7 | 19,0 | -9 | 89,2 | 82,0 | -8 |
Þjónustuinnflutningur | 90,7 | 69,6 | -23 | 428,1 | 280,3 | -35 |
Samgöngur og flutningar | 16,8 | 14,0 | -17 | 81,8 | 58,1 | -29 |
Ferðalög | 33,1 | 10,2 | -69 | 178,2 | 46,1 | -74 |
Önnur viðskiptaþjónusta | 16,4 | 18,4 | 12 | 67,7 | 74,7 | 10 |
Aðrir þjónustuliðir | 24,4 | 27,1 | 11 | 100,4 | 101,3 | 1 |
Þjónustujöfnuður | 22,4 | -10,9 | 248,5 | 39,5 |
Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2021. Í mars var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 82,4 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 100,7 milljarðar. Vöru- og þjónustujöfnuður var því áætlaður neikvæður um 18,3 milljarða króna í mars 2021.
*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281152 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.