FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 25. ÁGÚST 2022

Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi 2022 er áætlað 183,7 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 150,4 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 33,3 milljarða króna en hann var jákvæður um 23,5 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2021 til júní 2022, var þjónustujöfnuður jákvæður um 118,7 milljarða króna en var jákvæður um 61,6 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 69% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 81,1 milljarð króna, eða um 79%, frá öðrum ársfjórðungi 2021 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust mikið, eins og undanfarna ársfjórðunga, samanborið við annan ársfjórðung 2021 eða um 59,8 milljarða. Tekjur af samgöngum og flutningum jukust um 32,9 og meira en tvöfölduðust frá örðum ársfjórðungi 2021. Aftur á móti drógust útflutningstekjur af annari viðskiptaþjónustu saman um 2,5 milljarða króna, eða um 15%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2021 til júní 2022, var 611,8 milljarðar króna og jókst um 250,8 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 69% á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 193,1 milljarði og tæplega fjórfaldaðist. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, rétt rúmlega tvöfölduðust, og sömu sögu er að segja af útflutningstekjum af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu sem jukust um 22%. Hins vegar drógust útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu saman um 16%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 65% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á öðrum ársfjórðungi jókst um 71,3 milljarða króna, eða um 90%, frá öðrum ársfjórðungi 2021 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust mikið, eða um 40,9 milljarða samanborið við annan ársfjórðung 2021. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 7,7 milljarða eða 43%. Sömu sögu er að segja af útgjöldum vegna annarrar viðskiptaþjónustu sem rúmlega tvöfölduðust milli ára.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2021 til júní 2022, var 493,1 milljarður króna og jókst um 193,7 milljarða miðað við sama tímabil árið áður eða um 65% á gengi hvors árs. Vó þar þyngst að útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis rétt tæplega þrefölduðust og útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust um 49%.

Vöru- og þjónustujöfnuður neikvæður um 36,6 milljarða á tólf mánaða tímabili
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 254,6 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi 2022 en vöruinnflutningur 294,9 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 40,2 milljarða króna.

Á öðrum ársfjórðungi 2022 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 438,3 milljarðar króna samanborið við 287 milljarða á öðrum ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 445,2 milljarðar samanborið við 319,3 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður neikvæður um 7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 en var neikvæður um 32,3 milljarða á sama tíma 2021.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2021 til júní 2022, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn neikvæður um 36,6 milljarða króna en var neikvæður um 56,6 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2022. Í júní er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 163,2 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 150,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í júní 2022 hafi verið jákvæður um 12,5 milljarða króna.

Meðferð leigusamninga er tengjast utanríkisverslun er til endurskoðunar og mun sú endurskoðun hafa áhrif á bæði vöruskipta- og þjónustujöfnuð við næstu ársfjórðungsútgáfu.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustuviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.