FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 25. NÓVEMBER 2024

Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi 2024 er áætlað 319,3 milljarðar króna en verðmæti þjónustuinnflutnings 178,7 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir að þjónustujöfnuður hafi verið jákvæður um 140,5 milljarða króna en hann var jákvæður um 155 milljarða á sama tíma árið áður. Á tólf mánaða tímabili, frá október 2023 til september 2024, var þjónustujöfnuður jákvæður um 262,8 milljarða króna en var jákvæður um 299,6 milljarða tólf mánuðina þar á undan.

Verðmæti þjónustuútflutnings jókst um 2% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuútflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um þrjá milljarða króna, eða um 1%, frá þriðja ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útflutningstekjur af ferðalögum jukust um 7,7 milljarða samanborið við þriðja ársfjórðung 2023 eða um 5%. Tekjur af samgöngum og flutningum drógust saman um 2,2 milljarða eða 2% frá þriðja ársfjórðungi 2023. Útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust saman um 12%.

Verðmæti þjónustuútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2023 til september 2024, var 938,4 milljarðar króna og jókst um 2% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Vöxtur í útflutningstekjum af ferðalögum á sama tímabili nam 5%. Útflutningstekjur af samgöngum og flutningum jukust einnig, um 1%, en útflutningstekjur af annarri viðskiptaþjónustu drógust saman um 3%.

Verðmæti þjónustuinnflutnings jókst um 8% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti þjónustuinnflutnings á þriðja ársfjórðungi jókst um 17,4 milljarða króna, eða 11%, frá þriðja ársfjórðungi 2023 á gengi hvors árs. Útgjöld vegna ferðalaga Íslendinga erlendis jukust um 9% samanborið við þriðja ársfjórðung 2023. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust einnig á milli ára, um 5%, en útgjöld vegna annarrar viðskiptaþjónustu stóðu því sem næst í stað.

Verðmæti þjónustuinnflutnings á tólf mánaða tímabili, frá október 2023 til september 2024, var 675,6 milljarðar króna og jókst um 8% miðað við sama tímabil árið áður á gengi hvors árs. Þar vógu þyngst útgjöld Íslendinga á ferðalögum erlendis sem jukust um 6% og útgjöld vegna þjónustuliða, annarra en samgangna og flutninga, ferðalaga og annarrar viðskiptaþjónustu, sem jukust um 19%. Útgjöld vegna samgangna og flutninga jukust um 2%.

Vöru- og þjónustujöfnuður jákvæður um 64,5 milljarða á þriðja ársfjórðungi
Vöruútflutningur í greiðslujöfnuði* er áætlaður 242,3 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi 2024 en vöruinnflutningur 318,3 milljarðar. Vöruviðskiptajöfnuður er því áætlaður neikvæður um 76 milljarða króna.

Á þriðja ársfjórðungi 2024 er því áætlað verðmæti útflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 561,5 milljarðar króna samanborið við 543 milljarða á þriðja ársfjórðungi árið áður á gengi hvors árs. Á sama tíma er áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 497,1 milljarður króna samanborið við 472,4 milljarða á sama tíma árið áður. Vöru- og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 64,5 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2024 en hann var jákvæður um 70,6 milljarða á sama tíma 2023.

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2023 til september 2024, var vöru- og þjónustujöfnuðurinn áætlaður neikvæður um 32,4 milljarða króna en hann var jákvæður um 7,5 milljarða á tólf mánaða tímabilinu þar á undan.

Mánaðarlegur vöru- og þjónustujöfnuður
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan nú gögn um mánaðarlegan vöruskipta- og þjónustujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2024. Í september 2024 er áætlað verðmæti útflutnings vegna vöru- og þjónustuviðskipta 92,3 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 57,0 milljarðar. Fyrir vikið er gert ráð fyrir því að vöru- og þjónustujöfnuður í september 2024 hafi verið jákvæður um 35,4 milljarða króna.

*Samkvæmt stöðlum greiðslujafnaðar og þjóðhagsreikninga.

Talnaefni
Vöru- og þjónustviðskipti
Þjónustuviðskipti

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1156 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.