Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á þriðja ársfjórðungi 2019, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 55,5 milljarða króna samanborið við jákvæðan 75,8 milljarða króna jöfnuð á sama tíma árið 2018, á gengi hvors árs fyrir sig. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 45,9 milljarða króna á meðan þjónustujöfnuður var hagstæður um 101,3 milljarða króna. Heildarútflutningstekjur á þriðja ársfjórðungi 2019, vegna vöru- og þjónustuviðskipta, námu 374,0 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 318,5 milljörðum króna.
Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2019. Í september var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 115,6 milljarðar króna en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 108,8 milljarðar króna. Vöru- og þjónustujöfnuður var því áætlaður jákvæður um 6,8 milljarða króna í september 2019.
Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflum á vef Hagstofunnar sem samræma staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til september 2018 og 2019 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % | ||||
September | Janúar-September | ||||
2018 | 2019 | 2018 | 2019 | ||
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls | 128.940,2 | 115.641,6 | 992.698,0 | 1.011.460,7 | 1,9 |
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði | 49.701,6 | 52.555,3 | 442.817,3 | 491.102,5 | 10,9 |
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta | 79.238,7 | 63.086,3 | 549.880,6 | 520.358,2 | -5,4 |
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls | 104.335,5 | 108.843,3 | 907.363,3 | 914.859,1 | 0,8 |
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði | 63.086,3 | 69.186,5 | 568.048,8 | 576.790,2 | 1,5 |
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta | 39.656,9 | 39.656,9 | 339.314,5 | 338.068,8 | -0,4 |
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði | 24.604,7 | 6.798,3 | 85.334,6 | 96.601,7 |