FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. JANÚAR 2010

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2009 var útflutningur fob 42,0 milljarðar króna og innflutningur fob tæpir 35,1 milljarður króna. Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 7,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Hvað varðar útflutning þá eru vísbendingar um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða en meira verðmæti útflutts áls í desember 2009 miðað við nóvember 2009. Hvað varðar innflutning þá eru vísbendingar um minna verðmæti innflutts eldsneytis og hrá- og rekstrarvara í desember 2009 miðað við nóvember 2009.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.