Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 41,8 milljarða króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna fob (37,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í ágúst 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 11,3 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu átta mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 363,2 milljarða króna en inn fyrir 287,7 milljarða króna fob (312,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 75,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 54,1 milljarð á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 39 milljörðum eða 12,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 17,5 milljörðum eða 6,5% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd ágúst 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 39.983 | 41.805 | 324.246 | 363.197 | 12,0 |
Innflutningur alls fob | 28.707 | 34.776 | 270.174 | 287.684 | 6,5 |
Vöruskiptajöfnuður | 11.276 | 7.029 | 54.072 | 75.513 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 44.067,8 | 41.804,7 | 312.375,3 | 363.196,7 | 12,0 |
Sjávarafurðir | 19.353,0 | 17.478,2 | 132.533,3 | 142.151,4 | 3,3 |
Landbúnaðarvörur | 436,6 | 279,1 | 4.684,9 | 4.748,5 | -2,4 |
Iðnaðarvörur | 23.167,3 | 22.209,1 | 147.175,1 | 206.093,3 | 34,9 |
Aðrar vörur | 1.111,0 | 1.838,5 | 27.982,0 | 10.203,5 | -64,9 |
Innflutningur alls fob | 31.640,2 | 34.776,2 | 260.283,0 | 287.684,0 | 6,5 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.004,4 | 3.377,1 | 27.325,5 | 28.257,5 | -0,4 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 9.198,0 | 10.478,0 | 82.644,2 | 98.094,6 | 14,3 |
Eldsneyti og smurolíur | 3.747,9 | 6.457,8 | 31.138,9 | 37.796,6 | 16,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.971,2 | 7.301,5 | 56.929,4 | 66.275,8 | 12,2 |
Flutningatæki | 1.574,4 | 1.680,2 | 23.575,0 | 16.271,0 | -33,5 |
Neysluvörur ót.a. | 5.102,1 | 5.458,6 | 38.329,0 | 40.597,9 | 2,0 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 42,2 | 23,1 | 341,0 | 390,6 | 10,3 |
Vöruskiptajöfnuður | 12.427,6 | 7.028,5 | 52.092,3 | 75.512,7 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 3,8% hærra mánuðina janúar–ágúst 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í ágúst 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 9,3% lægra en í ágúst árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.